Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar 10. september 2026 16:31 Það var afar ánægjulegt að hlusta á ræðu heilbrigðisráðherra í gær, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Ráðherra lýsti því að hennar þingmál snerust meðal annars um lýðheilsu barna og nikótín. Bætt lýðheilsa barna stuðlar að betri lífsgæðum og heilsu, þar á meðal færri krabbameinstilvikum. Heilbrigðisráðherra nefndi sérstaklega óholla lifnaðarhætti sem ógna heilsu barna og þarf að ráðast gegn. Hún tiltók óhollt mataræði, litla hreyfingu, nikótín og aukið aðgengi að áfengi og nefndi áhrif net- og samfélagsmiðla í þessu samhengi. Hjá Krabbameinsfélaginu tökum við heils hugar undir áherslur heilbrigðisráðherra sem ríma við áherslur félagsins. Í því samhengi má nefna að Krabbameinsfélagið, ásamt systurfélögunum á Norðurlöndunum, gaf út leiðbeiningar til stjórnvalda til að vinna gegn ofþyngd barna árið 2024. Þær eru enn í fullu gildi. Félagið hefur einnig beitt sér fyrir því að nikótínvörur falli undir sömu löggjöf og tóbak. Þá hefur félagið beitt sér gegn auknu aðgengi að áfengi, hvort sem það lýtur að netsölu eða sölu á opinberum stöðum þar sem börn eru til staðar. Á það meðal annars við á íþróttaviðburðum og tekur félagið þar eindregið undir ummæli ráðherra „börn gera ekki það sem við segjum, þau gera það sem við gerum“. Í vor kannaði Krabbameinsfélagið sýn framboða til sveitarstjórna á hlutverk sveitarfélaganna í að byggja upp heilsueflandi sveitarfélög. Framboðin voru almennt mjög jákvæð hvað það varðar en sveitarfélögin eru í lykilstöðu til að tryggja börnum hollan mat í skólum, að auka hreyfingu í skólum og á opnum svæðum og bæta aðgengi að íþróttamannvirkjum, svo eitthvað sé nefnt. Heilbrigðisráðherra nefndi áhrif net- og samfélagsmiðla á heilsu barna. Beinar og óbeinar auglýsingar sem börn verða fyrir alla daga. Krabbameinsfélagið hefur lagt á það áherslu við stjórnvöld að þau setji strangar skorður við markaðssetningu á óhollum matvælum og að sjálfsögðu tóbaks- og nikótínvörum og áfengi til barna, með beinum og óbeinum hætti, líka á net- og samfélagsmiðlum. Sóknarfærin eru mörg varðandi það að bæta lýðheilsu barna en skýr vilji er fyrsta skrefið. Krabbameinsfélagið fagnar áherslu heilbrigðisráðherra á þessi mál og við erum að sjálfsögðu fús til samstarfs. Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Halla Þorvaldsdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Það var afar ánægjulegt að hlusta á ræðu heilbrigðisráðherra í gær, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Ráðherra lýsti því að hennar þingmál snerust meðal annars um lýðheilsu barna og nikótín. Bætt lýðheilsa barna stuðlar að betri lífsgæðum og heilsu, þar á meðal færri krabbameinstilvikum. Heilbrigðisráðherra nefndi sérstaklega óholla lifnaðarhætti sem ógna heilsu barna og þarf að ráðast gegn. Hún tiltók óhollt mataræði, litla hreyfingu, nikótín og aukið aðgengi að áfengi og nefndi áhrif net- og samfélagsmiðla í þessu samhengi. Hjá Krabbameinsfélaginu tökum við heils hugar undir áherslur heilbrigðisráðherra sem ríma við áherslur félagsins. Í því samhengi má nefna að Krabbameinsfélagið, ásamt systurfélögunum á Norðurlöndunum, gaf út leiðbeiningar til stjórnvalda til að vinna gegn ofþyngd barna árið 2024. Þær eru enn í fullu gildi. Félagið hefur einnig beitt sér fyrir því að nikótínvörur falli undir sömu löggjöf og tóbak. Þá hefur félagið beitt sér gegn auknu aðgengi að áfengi, hvort sem það lýtur að netsölu eða sölu á opinberum stöðum þar sem börn eru til staðar. Á það meðal annars við á íþróttaviðburðum og tekur félagið þar eindregið undir ummæli ráðherra „börn gera ekki það sem við segjum, þau gera það sem við gerum“. Í vor kannaði Krabbameinsfélagið sýn framboða til sveitarstjórna á hlutverk sveitarfélaganna í að byggja upp heilsueflandi sveitarfélög. Framboðin voru almennt mjög jákvæð hvað það varðar en sveitarfélögin eru í lykilstöðu til að tryggja börnum hollan mat í skólum, að auka hreyfingu í skólum og á opnum svæðum og bæta aðgengi að íþróttamannvirkjum, svo eitthvað sé nefnt. Heilbrigðisráðherra nefndi áhrif net- og samfélagsmiðla á heilsu barna. Beinar og óbeinar auglýsingar sem börn verða fyrir alla daga. Krabbameinsfélagið hefur lagt á það áherslu við stjórnvöld að þau setji strangar skorður við markaðssetningu á óhollum matvælum og að sjálfsögðu tóbaks- og nikótínvörum og áfengi til barna, með beinum og óbeinum hætti, líka á net- og samfélagsmiðlum. Sóknarfærin eru mörg varðandi það að bæta lýðheilsu barna en skýr vilji er fyrsta skrefið. Krabbameinsfélagið fagnar áherslu heilbrigðisráðherra á þessi mál og við erum að sjálfsögðu fús til samstarfs. Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar