DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar 12. september 2026 23:30 Nær allir þolendur ofbeldis tala um mikilvægi þess að umhverfið trúi þeim þegar þeir stíga fram með sársauka sinn. Með umhverfi er átt við samfélagið í heild sinni sem og aðstandendur í nærumhverfi. Á Íslandi, líkt og annarsstaðar virðist vera ákveðin staðreyndarfælni þegar kemur að tölfræði tengdri ofbeldi. Í villta vestri samfélagsmiðlanna eru voðaverk oft eignuð tómarúmi eða útlendingum sem illa finnast í rannsóknum. Þessi skaðlega geðþóttaskoðun og afvegaleiðing myndast oft vegna sjúklegrar ábyrðarfælni gerenda og getur birst í heiftugri aðför að þolendum. Þolendur eru þá gjarnan krafðir um að bera bæði ábyrgð og skömm gerenda sinna og geta í kjölfarið hlotið umtalsverðan sálrænan skaða af. Aðför þessi er til marks um DARVO sem er eitt af mikilvægustu hugtökunum til að skilja hvernig gerendur beita sálfræðilegri afvegaleiðingu og valdbeitingu þegar þeir eru kallaðir til ábyrgðar. Þetta er í grunninn varnar- og stjórnunaraðferð sem einkennist af sálfélagslegum glundroða sem m.a. gerendur ofbeldis nota þegar þeir eru gagnrýndir, staðnir að verki eða beðnir um að axla ábyrgð. Sálfélagsleg forskeyti Að skeyta orðinu „Sálfélagslegt“ fyrir framan allt og ekkert er svolítið í tísku núna þegar kemur að því að útskýra mannlega hegðun. Þegar við notum þetta orð erum við einfaldlega að tala um samspil hins félagslega og hins sálræna - hvernig félagslegt umhverfi, samskipti, menning og aðstæður hafa áhrif á líðan, hegðun, hugsun og tilfinningar einstaklings. Í stuttu máli erum við að tala um hvernig samfélag og samskipti móta sálræna líðan og um leið að ítreka að ekkert gerist í tómarúmi, hvorki gott né slæmt. Orðið er mikið notað í tengslum við: Öryggi, heilsu og svo áhættuþátti á borð við álag, útilokun, óvissu, einelti og ofbeldi. Hvaðan kemur DARVO? Hugtakið „DARVO“ kemur frá Jennifer J. Freyd sem er prófessor í sálfræði. Hún er hvað þekktust fyrir að hafa þróað og rannsakað lyklhugtök á borð við: Betrayal trauma/Áfallasvik - áföll sem gerast innan náinna sambanda. Þessi tegund svika á sér stað þegar manneskja sem þú treystir eða ert háð misbeitir þig eða skaðar. Hér er verið að tala um geranda sem er í yfirburðarstöðu þegar kemur að valdi eða trausti gagnvart þolanda sínum, t.d þegar yfirmaður beitir undirmann sinn kynferðislegu obeldi. Institutional betrayal/ Stofnanasvik - þegar stofnanir bregðast þolendum. Þessi gerð svika gerist þegar stofnun sem einstaklingur heyrir undir eða treystir bregðst honum og veldur skaða með því að vernda geranda, t.d.þegar kaþólska kirkjan hylmdi yfir með barnaníðunum víðsvegar um heiminn. Betrayal blindness/Svikablinda - ómeðvituð eða meðvituð blinda gagnvart svikum sem verndar gerendur og kerfi/stofnanir. Þetta birtist helst í áframhaldandi tryggð aðstandenda/samfélagins við sambönd/kerfi/stofnanir sem þau upplifa sig háða. Svikablindu er lýst sem ákveðnu “Aðlögunareinkenni” sem kemur alltaf niður á þolendum og forðar gerendum frá ábyrgðartöku. Institutional courage/Stofnana hugrekki- siðferðislega rétt og gagnsæ viðbrögð stofnana sem verndar þolendur og byggir upp straust. Disclosure and response/Frásögn og viðbragð - áhrif frásagna og mikilvægi heilbrigðra viðbragða. Hvernig styðjandi viðbrögð aðstandenda/samfélagsins við erfiðum frásögnum þolenda hafa jákvæð áhrif á líðan og bata. DARVO – varnar- og stjórnunaraðferð gerenda. Gerandinn reynir að gera þann sem upplýsir um ofbeldið að “gerandanum” og sjálfan sig að “þolanda” Afvegaleiðingin felst í að hlutverkunum er snúið við og umhverfið sýnir minni hluttekningu með þolandanum. Þetta má m.a. rekja til úthaldsleysis umhverfisins gagnvart samtölum um tilvist og tíðni kynferðisbrota og hverjir það eru sem brjóta kynferðislega á öðrum hérlendis. Það virðist verða óþægilegt samtal til lengdar hjá staðreyndarfælinni þjóð. Freyd kynnti DARVO fyrst í rannsóknum sínum á áfallum, valdbeitingu og svikum innan náinna sambanda og stofnana. Hún hefur skrifað um DARVO í samhengi við: heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi, stofnanabundið ofbeldi og valdakerfi sem verndar gerendur. Freyd hefur einnig bent á að DARVO sé algengt í opinberum afneitunum, t.d. þegar valdamiklir einstaklingar eða stofnanir eru gagnrýndar fyrir misbeitingu valds eða ofbeldi. Fyrir hvað stendur DARVO og hvernig birtist þessi aðferði í samskiptum? DARVO er skammstöfun sem stendur fyrir: D – Deny (Neita) A – Attack (Ráðast á/Aðför) RVO – Reverse Victim and Offender (Snúa við hlutverkum geranda og þolanda) Mikilvægt að taka fram að DARVO er ekki tilviljunarkennd eða aðstæðubundin hegðun heldur mynstur sem þjónar ákveðnum tilgangi. Það er að viðhalda völdum, stjórna frásögn/narratífu og þagga niður rödd þolanda. 1. Deny-Neita Gerandinn gjarnan neitar staðreyndum og dregur minningar þolanda í efa. Algengt er að gerandi haldi fram að atburður/hegðun/samskipti hafi aldrei átt sér stað eða sé misskilningur. Þetta er dæmi um klassíska gaslýsingu sem gengur út á að grafa undan trúverðugleika þolanda og upplifun hans gagnvart eigin reynslu. 2. Attack-Ráðast á/Aðför Á þessu stigi er athyglinni beint frá hegðun gerandans með því að ráðast gegn persónu eða viðbragði þolandans. Þetta er gert með því að gera lítið úr honum og reynslu hans og honum er gjarnan stillt upp sem engu betri eða jafnvel verri en gerandinn. Þolendur á þessu stigi eru oft vændir um ýgi, óstöðugleika eða óheiðarleika. Örvæntingafull viðbrögð þolanda eru notuð gegn honum og umhverfið tekur undir. Athyglin er á þessu stigi komin alfarið á viðbrögð þolanda í stað hegðunar geranda. Ringulreið ræður rikjum og þolandinn þjáist. 3. Reverse Victin and Offender - Snúa við hlutverkum þolanda og geranda. Lokastigið er þegar gerandi staðsetur sjálfan sig kyrfilega í hlutverk þolanda og sökum úthaldsleysi umhverfisins fyrir sálfélagslegum óþægileika þá gengur það oftar en ekki upp. Þolandinn er því staðsettur á einhvern hátt sem sá sem deilir ábyrgð eða jafnvel sá sem ber alfarið ábyrð á skaða. Þetta er öflug aðferð til að rugla umhverfið, fá samúð og endurheimta stjórn á aðstæðum og frásögn. Gerandi notar gjarnan agressífar nálganir, stillir fólki upp við vegg og speglar ásakanir á fremur einfaldan hátt. Af hverju er DARVO svona áhrifaríkt? Freyd tengir DARVO við kenningar sínar um Betrayal trauma/Áfallasvik, þar sem þolendur eru oft háðir gerandanum sínum, s.s. í nánum samböndum, hjónaböndum, fjölskyldu eða í gegnum vinnu. Í slíkum aðstæðum er oft auðvelt að rugla þolanda, snúa umhverfinu gegn honum og það getur reynst erfitt fyrir þolendur að treysta eigin upplifinum. DARVO er valdbeitingartækni sem veldur skaða. Hefur einhver náð að snúa upp á reynslu þína á þann hátt að þú upplifir að þú sért vandamálið? Hefur einhver náð að varpa ábyrgð sinni yfir á þig og fengið aðra með sér í lið? Ef svo er gæti verið tími til kominn að leita sér aðstoðar. Höfundur er ráðgjafi hjá Sálfræðingunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrafnhildur Sigmarsdóttir Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun