Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Smári Jökull Jónsson skrifar 15. september 2026 06:17 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að nýr Tækniskóli rísi í Reykjavík. Vísir/Einar/Arnar Borgarstjóri vill finna Tækniskólanum lóð í Reykjavík eftir að samkomulag skólans og Hafnarfjarðarbæjar fór út um þúfur. Skólinn gæti risið í Úlfarsárdal og segir borgarstjóri að það yrði lyftistöng fyrir efri byggðir Reykjavíkur að fá skólann þangað.
Í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans var greint frá því að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við Flensborgarhöfn væri farið út um þúfur þar sem Hafnarfjarðarbæ hafi ekki tekist að útvega skólanum lóð líkt og fyrirhugað var. Þar kom einnig fram að ekki væri svigrúm til frekari tafa á verkefninu en undirbúningur og hönnun nýbyggingarinnar hefur nú þegar tafist um marga mánuði. Því muni forsvarsmenn skólans kanna aðra möguleika á framtíðarstaðsetningu skólans á höfuðborgarsvæðinu. „Fór þá auðvitað strax af stað“ Þennan bolta virðist Reykjavíkurborg ætla að grípa á lofti því í viðtali í Kastljósinu á Rúv í gær sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri að hún vilji sjá nýjan Tækniskóla rísa í Reykjavík. Sagði hún að þegar hafi verið rætt um að skólinn rísi á lóð í Höllum í Úlfarsárdal. „Ég hafði nú heyrt af þessu einhverju fyrr og fór þá auðvitað strax af stað vegna þess að ég var mjög gagnrýnin á það á sínum tíma þegar Reykjavíkurborg hljóp ekki nægilega hratt og tryggði að nýr Tækniskóli myndi rísa hér í höfuðborginu,“ sagði Hildur meðal annars í Kastljósinu. Væri öflugt fyrir efri byggðir Sagði Hildur að búið væri að finna lóð í Höllum í Úlfarsárdal sem hún telji að gæti hentað skólanum sem gæti orðið flaggskip iðn- og tæknimenntunar á Íslandi. „Ég vil nýjan Tækniskóla í Reykjavík. Það væri gríðarlega öflugt fyrir efri byggðir að fá svona stóran og öflugan skólan og vinnustað þangað,“ sagði Hildur enn fremur. Fimm ár eru síðan talið var að búið væri að finna framtíðarlausn á húsnæðisvanda Tækniskólans þegar fulltrúar ríkisstjórnarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans undirrituðu viljayfirlýsingu um að byggja nýtt húsnæði við Suðurhöfn í Hafnarfirði. Í umfjöllun Rúv fyrir helgi kom fram að bærinn hafi gefið skólanum vilyrði um að byggja nýjan skóla á lóð sem þegar væri í notkun. Áformin hafi komið eigendum húss sem stóð á lóðinni í opna skjöldu og bæjaryfirvöld ekki rætt við eigendurna í marga mánuði auk þess sem tilboð bæjarins í húsin á lóðinni hafi verið óásættanlegt.
Reykjavík Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira