Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 20. september 2026 12:50 Olga hvetur foreldra til að taka þátt í foreldraröltinu. aðsend Foreldrar í Árbæ hafa ráðist í skipulagt foreldrarölt eftir að nokkur börn greindu frá hópi karlmanna sem eltu börnin í hverfinu. Foreldri segir málið á borði lögreglu og hvetur íbúa til að taka þátt í foreldrarölti.
Olga María Þórhallsdóttir Long er móðir tveggja barna og búsett í Árbæ í Reykjavík. Í síðustu viku var eldri sonur hennar að leika sér úti með vinum sínum þegar hann hringir hræddur í móður sína og tjáir henni að nokkrir menn séu að elta börnin. „Og svo kemur hann heim í þvílíkri geðshræringu og bara hágrátandi og segir að einhverjir fjórir hettuklæddir menn hafi verið að elta hann og verið að „jump-scarea“ sig og önnur börn.“ Og á Olga við að mennirnir hafi bæði elt börnin og stundað að bregða börnunum í þeim tilgangi að hræða þau. Hún ákvað að setja sig í samband við foreldri barns sem var á sama tíma á svæðinu sem segir að barn sitt hafi haft sömu sögu að segja. „Þannig að ég ákvað að setja þetta inn á svona Árbæjargrúppu. Og fékk þvílík viðbrögð frá fullt af foreldrum í hverfinu sem eiga börn sem að ýmist lentu í þessu eða höfðu heyrt af þessu.“ Hún segir að mennirnir hafi elt son hennar frá Árbæjarskóla að Krónunni. „Og þeir áttu að hafa boðið einhverjum tveimur stelpum nammi og það var búið að hringja á lögregluna tvisvar. Það voru tvær litlar stelpur sem hringdu á lögregluna.“ Byrjaði í síðustu viku Olga tilkynnti málið til lögreglu ásamt öðrum foreldrum. Umræður sköpuðust um málið í hverfishópnum á Facebook og ákváðu foreldrar að taka sig saman og hefja skipulagt foreldrarölt. „Við byrjuðum með þetta í seinustu viku og foreldrar hafa verið að skrá sig á daga og taka röltið. Maður þarf ekkert endilega að tilkynna að maður sé að rölta en bara gott að það sé virkt foreldrarölt í hverfinu, það ætti að fæla svona manneskjur frá börnunum okkar og líka þannig að maður viti hvað börnin manns eru að gera þegar maður er úti og geti komið í veg fyrir svona hættur.“
Börn og uppeldi Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira