Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. september 2026 18:16 Slagsmálin sem málið snýst um áttu sér stað á þessum gatnamótum, Naustarinnar og Hafnarstrætis, árið 2021. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur þyngt dóm yfir David Gabríel S. Glascorssyni fyrir tilraun til manndráps úr þremur árum í fimm ár. Hann veittist að öðrum með hníf og veitti umfangsmikla og lífshættulega áverka.
David Gabríel var ákærður fyrir að stinga annan mann með hnífi mánudaginn 13. júní 2021. Atvikið átti sér stað á gatnamótum Hafnarstrætis og Naustanna í Reykjavík að nóttu til. Hann var sakfelldur af héraðsdómi fyrir að stinga annan mann í kviðinn og veita honum með því umfangsmikla og lífshættulega áverka. Sá stungni hlaut fimm til sex sentímetra opinn skurð á kvið sem náði í gegnum maga og kviðarholsæð. Hann gekkst undir tvær skurðaðgerðir og var lífi hans bjargað. Dómur héraðsdóms var kveðinn upp 24. apríl 2025 en honum áfrýjað til Landsréttar. Ákvörðun Landsréttar var tekin í dag, 17. september 2026. Fyrir dómi sagði David Gabríel að brotaþolinn hefði sveiflað hnífi í átt til hans og reynt að hitta hann í efri hluta líkamans. Þá hefði hann stungið brotaþola en tók fram að hann myndi ekkert almennilega hvernig hún hefði gerst. Hins vegar sagði brotaþoli að David Gabríel hefði komið aftan að sér, fundið fyrir höggi, litið niður og séð að hann hefði verið stunginn. Báðir voru þeir í hópum og kom hópur brotaþola að skemmtistaðnum Palóma, þar sem David Gabríel var, og sögðust vilja ræða við hann. Brotaþolinn viðurkenndi fyrir dómi að markmið þeirra hefði ábyggilega verið að ganga í skrokk á honum. Báðir voru þeir vopnaðir hnífum. Miðað við lýsingarnar taldi dómarinn það ekki trúverðuga skýringu að tilviljun hafi ráðið því að hnífurinn sveiflaðist í brotaþola. Héraðsdómur taldi að hæfileg refsing væri þriggja ára fangelsisvist og miskabætur upp á eina milljón króna. Atvikið hafi einungis verið tilraun til manndráps og hefðu brotaþoli og félagar hans átt frumkvæði að átökunum. Einnig tók dómarinn tillit til ungs aldurs Davids Gabríels. Landsréttur þyngdi hins vegar dóminn í fimm ár og hækkaði miskabæturnar upp í tvær milljónir króna. Munurinn var að dómarinn taldi að um væri að ræða tilraun til manndráps þar sem David hefði gert sér grein fyrir því að hnífstungan gæti leitt til andláts. Þar með var öðrum lagalegum rökum beitt við dóminn fyrir Landsrétti. David Gabríel fékk einnig átta mánaða dóm í tengslum við svokallað Bankastræti Club-málið. Sá atburður átti sér stað í nóvember 2022, eftir þennan umrædda atburð.
Dómsmál Reykjavík Vopnaburður barna og ungmenna Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira