Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar 18. september 2026 07:45 Verðbólga og háir vextir hafa verið eitt stærsta hagsmunamál íslenskra heimila undanfarin ár. Umræðan snýst gjarnan um hvað Seðlabankinn eigi að gera og hvenær vextir geti lækkað. Ábyrgðin á verðbólgunni liggur hins vegar ekki eingöngu hjá Seðlabankanum heldur hefur hið opinbera, ríki og sveitarfélög, mikil áhrif líka með gjaldskrám, álögum og umfangi opinberrar þjónustu. Tekið af skarið Á þessu ári tók Kópavogsbær ákvörðun um að takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Þótt ákvörðunin leiði til lægri tekna sveitarfélagsins en ella snýst ákvörðunin fyrst og fremst um pólitíska forgangsröðun. Við í bæjarstjórn Kópavogs teljum mikilvægt að sveitarfélagið leggi sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna. Hóflegri gjaldskrárhækkanir verja ráðstöfunartekjur heimilanna og draga úr verðbólguþrýstingi og stuðla um leið að því að kjarasamningar haldi og við þá sameiginlegu viðleitni að skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og vöxtum. Kópavogur er tilbúinn að halda áfram Nú er vinna við fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 að hefjast og hefur bæjarráð Kópavogs lýst yfir þverpólitískum vilja til þess að hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum verði áfram takmarkaðar við 2,5% á næsta ári, haldi kjarasamningar og ríkið og önnur sveitarfélög séu tilbúin að taka þátt í sambærilegu átaki. Kópavogur getur lagt sitt af mörkum en eitt sveitarfélag leysir ekki verðbólguvandann – ef við ætlum að ná raunverulegum árangri þarf hið opinbera að ganga í takt. Athafnir þurfa að fylgja orðum Stjórnmálamenn geta ekki talað fyrir lægri verðbólgu og vöxtum á sama tíma og þeir hækka álögur og gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið. Þar þurfa orð og athafnir að fara saman. Ef við ætlum að biðja heimilin um að sýna aðhald, fyrirtækin um hófsemi í verðlagningu og aðila vinnumarkaðarins um að standa vörð um forsendur kjarasamninga verður hið opinbera að vera tilbúið að gera slíkt hið sama. Það er ekki trúverðugt að tala um sameiginlega baráttu gegn verðbólgu en velta síðan auknum kostnaði hins opinbera beint út í verðlagið. Þess vegna er mikilvægt að ríkið og sveitarfélög landsins setjist yfir sínar gjaldskrár fyrir árið 2027 og setji sér sameiginlegt markmið: að halda hækkunum eins nálægt 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans og mögulegt er. Aðhald þarf ekki að þýða verri þjónustu Stundum er látið eins og aðeins séu tveir kostir í rekstri hins opinbera: annaðhvort að hækka skatta og gjöld eða skera niður þjónustu. Það er ekki rétt nálgun. Kjörnir fulltrúar sveitarfélaga bera ábyrgð á því að nýta skattfé íbúa eins vel og mögulegt er. Við eigum stöðugt að leita leiða til að einfalda stjórnsýslu, bæta rekstur, nýta tæknina betur og forgangsraða fjármunum í þá þjónustu sem skiptir íbúana mestu máli. Það er hægt að reka sveitarfélag af ábyrgð en um leið standa vörð um góða grunnþjónustu. Reynslan í Kópavogi sýnir að fjárhagslegt aðhald og hóflegar álögur geta farið saman. Það er sú stefna sem við viljum halda áfram að fylgja. Fleiri þurfa að stíga fram Við í Kópavogi höfum þegar stigið skrefið og takmarkað gjaldskrárhækkanir fyrir barnafjölskyldur við verðbólgumarkmið Seðlabankans og erum tilbúin að gera slíkt hið sama árið 2027. Nú hvetjum við ríkið og önnur sveitarfélög til að koma með okkur. Það yrðu sterk skilaboð ef opinberir aðilar gætu sameinast um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum á næsta ári og sent um leið skilaboð til heimilanna um að hið opinbera ætli að verja ráðstöfunartekjur þeirra. Þannig væru skilaboð til vinnumarkaðarins skýr um að við ætlum að standa vörð um forsendur kjarasamninga og leggja okkar af mörkum til að ná verðbólgunni niður. Verðbólgubaráttan verður ekki unnin með yfirlýsingum einum saman – hún krefst ákvarðana. Í Kópavogi höfum við tekið okkar ákvörðun sem var þverpólitísk á alla stjórnmálaflokka bæjarráðsins. Við erum klár, ef þið eruð klár. Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásdís Kristjánsdóttir Mest lesið Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun