Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 19:05 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna bílveltu á Barðastrandarvegi á fimmta tímanum í dag en einn var fluttur á Borgarspítalann til aðhlynningar. Alls voru sjö í bílnum sem valt tvisvar eða þrisvar sinnum og fór betur en á horfðist en allt tiltækt lið lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita á svæðinu var kallað á vettvang.
Einstaklingur sem var meðvitundarlaus þegar viðbragðsaðila bar að garði var sóttur í kjölfar slyssins og staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar að þyrlan hafi lent á Borgarspítalanum á sjöunda tímanum í kvöld en útkallið barst um tveimur tímum fyrr. Um var að ræða fólksbíl sem í voru sjö manns en sex þeirra sem voru í bílnum þegar hann valt voru flutt á Patreksfjörð til athugunar og aðhlynningar. Þetta staðfestir Hlynur Hafberg Snorrason yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Hann staðfestir einnig að tildrög slyssins séu til rannsóknar en talið sé að bíllinn hafi oltið tvisvar eða þrisvar við Innri-Múla á Barðastrandarvegi. Allir tiltækir viðbragðsaðilar á svæðinu hafi verið kallaðir til: lögregla, slökkvilið, sjúkrabílar og björgunarsveitir, en það hafi farið betur en á horfðist. Manneskjan sem hafi verið meðvitundarlaus þegar lögregluna bar að garði hafi verið búin að ranka við sér áður en hún var færð upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar og flutt til Reykjavíkur.
Landhelgisgæslan Vesturbyggð Samgönguslys Lögreglumál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fleiri fréttir Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Sjá meira