Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 20. september 2026 19:57 Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var mögnuð í kvöld. vísir/Ernir Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var enn og aftur markahæst í liði Hauka þegar liðið vann góðan sigur á Íslands- og bikarmeisturum Vals að Ásvöllum í kvöld.
Jóhanna Margrét hefur farið með himinskautum í upphafi leiktíðar í Olís-deildinni og skorað 35 mörk í þremur leikjum, þar af tólf í sigrinum í kvöld. „Ógeðslega stolt af því hvernig við komum inn í leikinn og spilum í sextíu mínútur. Hörku vörn allan tíman og náðum að keyra vel á þær,“ sagði Jóhanna Margrét beint eftir leik. Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn, en Haukar náðu að mynda sér tveggja marka forystu á lokamínútu fyrri hálfleiks og náðu að búa til góða forystu í þeim síðari sem að lokum skilaði sigrinum. Jóhanna Margrét segir muninn á hálfleikjunum hafa verið færanýtingin. „Mér finnst við bara ná að klára færin okkar aðeins betur og ná að standa aðeins betur sóknarlega. Vinnum síðan leikinn á varnarleik og stemningu.“ Jóhann Margrét er afar sátt á Ásvöllum. „Mjög gaman, mér líður ógeðslega vel. Ógeðslega skemmtilegar stelpur, gott þjálfarateymi og mér líður bara mjög vel hérna á Ásvöllum.“ Eins og fyrr segir hefur Jóhanna Margrét farið með himinskautum í upphafi tímabils, en hún var ekki valin í æfingahóp íslenska landsliðið fyrir komandi æfingaviku sem hefst á morgun. Aðspurð hvort það sé svekkjandi, þá stóð ekki á svörum. „Auðvitað er það svekkjandi. Auðvitað vill maður spila fyrir landsliðið, en maður heldur bara áfram að gera sitt og vonandi skilar það sér,“ sagði Jóhanna Margrét að lokum.
Olís-deild kvenna Haukar Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira