Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar 22. september 2026 10:01 Fyrirtækið Tom Tom framleiðir leiðsögutæki í bíla. Úr tækjunum fást upplýsingar í gegnum gerfihnetti til að meta umferðarástand í borgum. Tom Tom birtir árlega lista með upplýsingum um umferðarástand á tæplega 500 borgarsvæðum, þ.á.m. höfuðborgarsvæðinu. Einkum er stuðst við svokallaðan tafastuðul (e. traffic index, average congestion), en hann segir til um hversu mikinn tíma það tekur að jafnaði að aka milli tveggja staða umfram þann tíma sem það tæki ef engar væru umferðartafirnar. Á listanum eru líka upplýsingar um árlegt tímatap í umferðartöfum svo og meðalferðahraða í bíl á viðkomandi borgarsvæði. Umferðarástandið á höfuðborgarsvæðinu Höfuðborgarsvæðið er nr. 216 á listanum miðað við tafastuðul, þ.e. 215 borgarsvæði af 492 eru með lakara umferðarástand. Ef miðað er við tímatap í umferðarteppum þá eru 147 borgarsvæði með verra umferðarástand. Ef miðað er við ferðahraða í bíl þá eru 180 borgarsvæði af 492 eru með lakara umferðarástand en höfuðborgarsvæðið. Samanburður milli landa og borga Umferðarástandið er að jafnaði verst á Indlandi, Indónesíu, Suður-Ameríku, Austur-Evrópu og Bretlandi. Best er ástandið í bílaborgum BNA. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að umferðartafir í bílaborgum eru að jafnaði töluvert minni en í öðrum borgum. Höfuðborgarsvæðið er lítil bílaborg. Miðað við það væri eðlilegt að umferðarástandið á höfuðborgarsvæðinu væri með því besta á lista Tom Tom. Svo er alls ekki. Skoðum málið nánar með samanburði milli borga. Sumir hallast að því að við eigum fyrst og fremst að bera okkur saman við hin Norðurlöndin. Umferðartafir þar virðast eftir atvikum vera tiltölulega litlar, þrátt fyrir nokkuð þétta byggð. Hár hlutur hjólandi leiðir til þess að umferðartafir verða minni en ella. Umferðarástandið í norrænu borgunum er þó lakara en í álíka stórum bandarískum borgum. Aðeins í Helsinki er umferðarástandið lakara en á höfuðborgarsvæðinu. Í spænskum borgum er hvergi jafn slæmt umferðarástand og á höfuðborgarsvæðinu. Á listanum er 91 bandarísk borg. Viðkomandi borgarsvæði eru öll fjölmennari en höfuðborgarsvæðið. Miðað við tafastuðul eru 15 af þeim borgarsvæðum með lakara umferðarástand en höfuðborgarsvæðið. Miðað við tapaðar klst. í umferðarteppu eru aðeins 3 af bandarísku borgarsvæðunum með lakara umferðarástand en höfuðborgarsvæðið, en það eru New York, Miami og Los Angeles. Miðað við ferðahraða í bíl eru aðeins 2 af bandarísku borgarsvæðunum með lakara umferðarástand en höfuðborgarsvæðið, en það eru San Fransisco og New York. Hver er líkleg þróun umferðarástands á höfuðborgarsvæðinu? Samkvæmt umferðarspá í samgöngulíkani höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2040 (Mannvit & Cowi, 2024) munu umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu mældar í klst u.þ.b. þrefaldast á tímabilinu 2019-2040, jafnvel þó öllum framkvæmdum í samgöngusáttmálanum ásamt Sundabraut verði lokið fyrir 2040, sbr. eftirfarandi töflu úr skýrslu Mannvits & Cowi: Tafastuðullinn í umferðarspánni er nálægt því að vera Tafir/(Ferðatími í frjálsu flæði) x 100 % og reiknast um 8 % árið 2019 og 15 % árið 2040. Tafastuðull skv. Tom Tom er 33,7 % á höfuðborgarsvæðinu árið 2025. Hann var um 29 % árið 2019 en reiknast aðeins um 8 % í samgöngulíkaninu. Samgöngulíkanið reiknar aðeins tafir vegna annarrar umferðar. Tom Tom mælir allar umferðartafir, þ.m.t. tafir vegna umferðarslysa, gatnaframkvæmda, byggingarframkvæmda, slæmrar færðar o.fl. Auk þess er skilgreining Tom Tom á frjálsu flæði umferðar þrengri en í samgöngulíkaninu. Að öllu samanlögðu hef ég áætlað að árið 2040 verði tafastuðull Tom Tom á höfuðborgarsvæðinu 30 - 50 % hærri en árið 2019, þ.e. verði á bilinu 43,8 - 50,5 %, miðað við þessa umferðarspá. Miðað við óbreyttan lista myndi höfuðborgarsvæðið fara úr 216. sæti upp í 30. – 70. sæti miðað við röðun eftir tafastuðli. Rétt er að undirstrika að ofangreint er miðað við óuppfærðar áætlanir um uppbyggingu höfuðborgarsvæðisins og þá útfærslu Borgarlínu sem fyrrverandi meirihluti borgarstjórnar aðhylltist. Það liggur í loftinu að þegar svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins verður endurskoðað þá verði vaxtarmörk byggðar færð út. Nýr meirihluti borgarstjórnar ætlar að hverfa frá ofurþéttingu byggðar. Sú stefnubreyting mun leiða til þess að umferðartafir í framtíðinni verða að öðru jöfnu minni en ella. Hér fyrir neðan er svokölluð mismunaspá fyrir höfuðborgarsvæðið 2034 (Mannvit & Cowi, 2020). Mismunaspáin sýnir þær breytingar á sólarhringsumferð sem reiknað er með að verði á tímabilinu 2019-2034 í valkosti án Sundabrautar. Spáin gefur ótvírætt til kynna að umferðin eykst mest þar sem þétting byggðar er mest. Þetta er í samræmi við erlendar rannsóknir sem sýna að umferðartafir í borgum eru gjarnan meiri þar sem þéttleiki byggðar er meiri. Nýr meirihluti borgarstjórnar hefur ákveðið að ekki verða lagðar niður akreinar fyrir almenna umferð á Suðurlandsbraut til þess að skapa sérrými fyrir Borgarlínuna. Vonandi verður það sama uppi á teningnum á öðrum umferðargötum. Það mun ótvírætt leiða til þess að umferðartafir 2040 verða umtalsvert minni en ella. Ef skipulags- og samgönguyfirvöld bera gæfu til að fylgja svipaðri stefnu til 2040 þá aukast líkurnar á því að umferðartafir 2040 aukist ekki frá því sem er í dag. Hins vegar verður að telja ólíklegt að umferðartafir 2040 verði minni en í dag, nema því aðeins að lögð verði meiri áhersla á hagkvæmar vegabætur í endurskoðuðum samgöngusáttmála. Höfundur er samgönguverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Hjaltason Mest lesið 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun