Verkfallið skaði orðspor Íslands Bjarki Sigurðsson skrifar 22. september 2026 08:55 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, óttast að verkfall gæti skaðað orðspor Icelandair og Íslands til lengri tíma. Vísir/Arnar Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir boðað verkfall flugvirkja ekki einungis hafa tímabundin áhrif á rekstur Icelandair og ferðaþjónustu landsins heldur gæti það haft töluverð áhrif á orðspor bæði fyrirtækisins og Íslands. Hann á von á því að stjórnvöld grípi í taumana ef kemur til verkfalls.
Að öllu óbreyttu hefst verkfall flugvirkja Icelandair á miðnætti. Flugvirkjar hafa boðist til að fresta aðgerðum um sjö daga sem flugfélagið hafnað. Deiluaðilar funduðu síðast á föstudag. Um kvöldmatarleytið í gær höfðu um þrjú þúsund farþegar breytt flugferðum sínum vegna verkfallsins en samkvæmt áætlun ætti Icelandair að fljúga 47 ferðir frá Keflavíkurflugvelli á morgun. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddi möguleg áhrif verkfallsins í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar sagði hann það ekki hafa komið á óvart að Icelandair hafi hafnað frestunartilboði flugvirkja. Frestun komi ekki í veg fyrir skaða ferðaþjónustunnar. „Hann er þegar orðinn og frestun framlengir í rauninni bara óvissuna. Ég held að ef menn ætla að fara í þessar aðgerðir að þá verði þeir bara gjöra svo vel að gera það og sjá hvort samfélagið þitt vilji standa í því með þeim,“ segir Jóhannes. Hvað þýðir ótímabundið fyrir ferðamönnum? Verkfallið muni hafa mikil áhrif á orðspor flugfélagsins. „Lufthansa hefur lent í vandræðum til dæmis og fleiri flugfélög á undanförnum árum og það hefur haft töluvert mikil áhrif á orðspor þessara félaga og þessara áfangastaða. Það sem við sjáum að er að hafa mest áhrif er þetta orð, ótímabundið. Okkar viðskiptavinir erlendis, farþegarnir og gestirnir sem ætla að koma til Íslands, eiga mjög erfitt með að skilja þetta ótímabundið. Hvað þýðir það? Bara byrjar verkfallið og svo hættir það aldrei?“ segir Jóhannes. Milljarðar í húfi Orðsporið gæti verið skaddað til lengri tíma. „Það er ekki bara ferðaþjónustan sem tapar peningum á þessu. Þetta er í rauninni allt samfélagið sem tapar á þessu. Ég meina, fyrir hvern milljarð sem kemur inn í gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu þá fá ríki og sveitarfélög þrjú hundruð milljónir af skatttekjum. Þannig að þú þarft ekki nema þrjá daga af svona verkfalli og þá er ríkið búið að tapa milljarði,“ segir Jóhannes. Hann telur eðlilegt að ríkisvaldið velti því fyrir sér hversu mikið og víðtækt tjónið megi vera áður en gripið er inn í. „Ég á allt eins von á því að það gerist. Við höfum séð það á undanförnum árum að ríkisvaldið hefur gripið inn í deilur sem hafa bein áhrif á þessa lífæð til og frá landinu. Þetta snýst ekki bara um ferðaþjónustu. Stór hluti af verðmætasta sjávarfangsútflutningi Íslands fer í gegnum Keflavík. Þar er líka tap sem hefur ekki verið rætt um sérstaklega. Þetta er samfélagslegt vandamál ef þetta fær að grassera í einhverja daga,“ segir Jóhannes.
Flug Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Keflavíkurflugvöllur Samgöngumál Kjaramál Ferðaþjónusta Bítið Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Viðskipti innlent Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Viðskipti innlent Jóhanna tekur við sem forstjóri Viðskipti innlent Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Neytendur Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Sjá meira