Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Valur Páll Eiríksson skrifar 22. september 2026 14:16 Mbappé og mamma hans hrifust mjög af Jurgen Klopp og Liverpool sem klúbbi. Frakkinn ákvað hins vegar að halda kyrru fyrir í heimalandinu og semja frekar við PSG. Michael Regan - FIFA/FIFA via Getty Images Kylian Mbappé var nærri því að ganga í raðir Liverpool frá Mónakó á sínum tíma. Mamma hans hvatti hann eindregið að fara til Bítlaborgarinnar.
Mbappé greinir frá þessu í löngu viðtali við The Athletic sem kom út í dag. Sá franski var orðaður við Liverpool þegar hann var leikmaður Mónakó en ákvað frekar að semja við Paris Saint-Germain í heimalandinu. „Þetta var á meðan ég spilaði í Mónakó. Ég þurfti að taka ákvörðun. Og já, ég var nálægt því að fara til Liverpool. Mamma var mikill aðdáandi Jurgen Klopp og uppáhaldsáfangastaðurinn hennar var Liverpool. Hún vildi að ég færi þangað,“ segir Mbappé og bætir við:„Ég hlustaði ekki því ég vildi spila í borginni minni, París. Ég vildi ekki yfirgefa landið mitt áður en ég væri orðinn einhver. En já, mamma sagði alltaf: „Liverpool – þú munt fara þangað, spila á Anfield, það verður geggjað fyrir þig.“ Ég sagði bara: „Allt í lagi!“ Mbappé fór til Liverpool í viðræður og mamma hans varð ástfangin af Anfield og starfsfólki félagsins. „Hún fór þangað (í) fyrsta skrefið í samningaviðræðunum. Hún fór til borgarinnar, á leikvanginn, hún hitti fólkið. Hún sagði: „Þetta er dásamlegur klúbbur, allir eru svo vingjarnlegir, þetta er fjölskylduklúbbur, stór klúbbur,“ segir Mbappé og bætir við:„Hún fór á Anfield og varð ástfangin af staðnum. Hún horfði á nokkra leiki ein til að finna fyrir andrúmsloftinu, því hún vildi ímynda sér mig á þessum leikvangi.“ Mbappé hafi hrifist af Jurgen Klopp, þáverandi knattspyrnustjóra Liverpool, en á endanum ákveðið að fara til PSG. „Við vorum alltaf að tala saman. „Hvað finnst þér, mamma?“ Hún sagði: „Mér finnst að þú eigir að fara til Liverpool.“ Ég sagði: „Allt í lagi, allt í lagi, allt í lagi!“ því Jurgen Klopp var frábær stjóri. Ég hitti hann og átti frábært samband við hann. Ég bar mikla virðingu fyrir honum.“
Franski boltinn Enski boltinn Spænski boltinn Liverpool FC Real Madrid CF Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Sjá meira