Sport

Flúði grjót­kast í heima­landinu og vann silfur

Andri Broddason skrifar
Fariba Hashimi er að keppa fyrir meira en bara hana sjálfa, hún vill sýna fólki í heimalandinu hvað hún hefur gert.
Fariba Hashimi er að keppa fyrir meira en bara hana sjálfa, hún vill sýna fólki í heimalandinu hvað hún hefur gert. Szymon Gruchalski/Getty Images

Afganska hjólreiðakonan Fariba Hashimi vann silfur í hjólreiðum á Asíuleikunum. Í heimalandi hennar hefur hún þurft að þykjast vera karlmaður á meðan hún æfði sig þar sem réttindi fyrir kvenfólk eru skert.

Hashimi flúði heimalandið sitt árið 2021 þegar Talibanar tóku völdin aftur í Afganistan og kom sér fyrir á Ítalíu. Í viðtali við Reuters segir Hashimi að hún sé ekki bara að keppa fyrir sig heldur til að sýna fólki í heimalandinu hvað konur geta náð langt.

„Ég vona að eitthvað geti breyst svo næsta kynslóð geti æft inni í sínu eigin heimalandi til þess að keppa á Asíuleikunum,“ sagði Hashimi en hún byrjaði að æfa hjólreiðar 15 ára eftir að eldri systir hennar dró hana á æfingu.

„Ég klæddi mig eins og karlmaður til þess að fara á æfingu, ég var með tvær eða þrjár mismunandi grímur svo fólk myndi ekki þekkja mig eða ráðast á mig.“

Alessandra Cappellotto tók á móti Hashimi og systur hennar á Ítalíu en hún varð heimsmeistari í hjólreiðum árið 1997. Hashimi óskar þess innilega að menningin í sínu eigin landi breytist og hún geti flutt aftur heim.

„Það er leiðinlegt að ég geti ekki búið í heimalandinu mínu. Ég hef ekki séð fjölskylduna mína svo lengi. Til að elta drauminn minn þurfti ég að flýja frá mínu eigin landi. Ég flúði frá steinunum sem fólkið kastaði til mín. Stóri draumurinn minn er að flytja til baka [til Afganistan] og veita fólkinu mínu innblástur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×