Sport

„Við erum ekki að ýta undir slags­mál en við erum að ýta undir ást­ríðu“

Andri Broddason skrifar
Carson Hocevar og Ryan Blaney lentu í slagsmálum eftir NASCAR-kappakstur á laugardaginn. 
Carson Hocevar og Ryan Blaney lentu í slagsmálum eftir NASCAR-kappakstur á laugardaginn.  Chris Graythen/Getty Images

Tveir keppendur í NASCAR sem enduðu á að fara í slag hvor við annan eftir að þeir lentu í árekstri munu ekki fá neina refsingu. Steve O’Donnell, framkvæmdastjóri NASCAR, vill breyta ímynd íþróttarinnar þar sem ökumenn mega sýna ástríðu fyrir utan bílana sína.

Slagsmál brutust út eftir NASCAR-kappaksturinn sem fór fram á Bristol Motor-kappakstursbrautinni í Bandaríkjunum síðasta laugardag. Þar keyrði Carson Hocevar utan í Ryan Blaney sem gerði það að verkum að Blaney endaði í árekstri og þurfti að hætta keppni eftir að hafa leitt stóran hluta keppninnar.

Eftir keppnina gekk Blaney að Hocevar sem stóð hjá bílnum sínum og ýtti honum ákaflega. Hocevar svaraði með sama hætti og fljótlega brutust út slagsmál. Eftir slagsmálin sleppti stjórn NASCAR að refsa ökumönnunum sem er mikil breyting á hefðum innan íþróttarinnar.

Fyrir tveimur árum lentu Ricky Stenhouse Jr. og Kyle Busch í átökum og fyrir það voru þeir sektaðir um 75 þúsund dollara eða rúmlega níu milljónir króna. Flestir ökumenn vildu ekki borga þessa stóru sekt og var því lítið um slagsmál eftir það í NASCAR.

Vinsældir NASCAR voru að fara lækkandi og voru stjórnarmenn næstum að grátbiðja ökumenn að sýna lit og persónuleika í keppnum. Þeir þorðu þó ekki að fara yfir strikið vegna hættu á að vera sektaðir.

Í apríl tók Steve O’Donnell við sem framkvæmdastjóri NASCAR og breytti áherslum þar sem ökumenn voru ekki hvattir til að slást en þeim yrði ekki refsað fyrir það.

„Ökumenn þurfa að útkljá sín mál utan bílsins. Við erum ekki að ýta undir slagsmál, en við erum að ýta undir ástríðu,“ sagði O‘Donnel við Kevin Harvick sem stjórnar hlaðvarpinu „Happy hour“. Í framhaldinu sagði O‘Donnel að NASCAR hefði breyst frá því sem það var árum fyrr. Markmið hans á meðan hann er við stjórnvölinn er að snúa íþróttinni aftur á þann stað sem hún var á blómaskeiði íþróttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×