Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Stefán Árni Pálsson skrifar 23. september 2026 20:15 Hakimi er lykilmaður í liði Marokkó og PSG. Getty/Dan Mullan Achraf Hakimi, leikmaður Paris Saint-Germain og landsliðsfyrirliði Marokkó, þarf að mæta fyrir frönskum sakadómi vegna ásökunar um nauðgun. Hæstiréttur Frakklands staðfesti þetta í dag.
Málið á rætur að rekja til febrúar 2023 þegar 24 ára kona kærði Hakimi og sagðist hafa verið beitt kynferðisofbeldi á heimili hans í Boulogne-Billancourt, nærri París. Hakimi hefur frá upphafi neitað sök. Paris Saint-Germain and Morocco defender Achraf Hakimi will stand trial for rape after his appeal to the highest court in France was dismissed on Wednesday.Hakimi, who is one of 30 players nominated for the Ballon D’Or ahead of next month’s ceremony in London, has now tried…— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) September 23, 2026 Í febrúar á þessu ári ákvað rannsóknardómari að næg gögn væru fyrir hendi til að senda málið fyrir sakadóm. Áfrýjunardómstóll í Versölum staðfesti þá ákvörðun 19. júní og Hakimi kærði í kjölfarið til Hæstaréttar. WhatsApp-skilaboð Hæstiréttur hafnaði nú kærunni án þess að taka afstöðu til þess hvort Hakimi sé sekur eða saklaus. Niðurstaðan þýðir einfaldlega að málið verður tekið fyrir í sakadómi þar sem sönnunargögn og frásagnir beggja aðila verða metin. Í gögnum málsins eru meðal annars WhatsApp-skilaboð sem konan sendi vinkonu sinni á meðan hún var á heimili Hakimi. Einnig hafa vitnisburðir annarra verið metnir af dómstólum. Le Monde greinir frá því að Kylian Mbappé hafi verið meðal þeirra sem gáfu skýrslu í rannsókninni. Ekki hefur verið ákveðið hvenær réttarhöldin fara fram.
Franski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Íslenski boltinn Kane lendir um helgina Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Breiðablik - Víkingur | Íslandsmeistararnir mæta Bikarmeisturunum Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira