Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. september 2026 08:01 Daníel Leó kann vel við sig á nýjum stað. Vísir/Sigurjón Daníel Leó Grétarsson fagnar nýrri áskorun hjá AGF í Danmörku eftir streitumikinn lokadag félagsskiptagluggans. Skipti hans til félagsins frá Sönderjyske gengu í gegn á ögurstundu.
Daníel Leó hefur leitt vörn Sönderjyske með ágætum undanfarin ár og verið orðaður við önnur lið reglulega. Hann hafði greint félaginu frá því að hann vildi reyna fyrir sér annars staðar og félagið tók ágætlega í þá beiðni að komast burt, svo lengi sem verðmiði þess yrði virtur. Klippa: Daníel Leó ræðir stressandi gluggadag, varnarleikinn og Þjóðadeildina Útlit var hins vegar orðið fyrir að Daníel Leó kæmist ekki neitt, þar til Danmerkurmeistarar AGF kláruðu samninga á lokadegi félagsskiptagluggans. Daníel kann vel við sig í Árósum. „Mjög vel. Auðvitað er ég ekki búinn að vera þarna lengi. Þetta gerðist seint á gluggadegi og lengi vel hélt ég að ég væri ekki að fara neitt. En þetta gekk á endanum og ég er mjög sáttur að vera kominn þangað,“ segir Daníel Leó. Dagurinn var því skrautlegur. „Já, það má segja það. Þetta gerðist mjög seint á deginum og ég var bara mættur þarna nokkrum tímum fyrir lokun. En eins og ég segi, er mjög ánægður að þetta hafi gengið upp.“ Þannig að þetta var strax eitthvað sem að heillaði og þig langaði að gera? „Já, í aðstæðunum sem ég var í þarna. Við vorum búin að vera mjög hreinskilnir við hvort annað, ég og klúbburinn. Þeir vissu að ég vildi fara og fá nýja áskorun og var löngu búinn að segja þeim það,“ „Þeir voru sáttir með það, svo lengi sem að þeir fengu það sem þeir vildu fyrir mig. Ég held bara að báðir klúbbar hafi gengið út úr þessu bara mjög ánægðir og þá er ég ánægður líka.“ Erfið byrjun AGF vann óvænt danska meistaratitilinn í fyrra og sem var langt fram úr væntingum. Liðinu hefur gengið illa að fylgja því eftir á yfirstandandi leiktíð og hefur enn ekki unnið leik. Það er með fimm stig eftir níu leiki í ellefta og næsta neðsta sæti. „Já, það er oft á seinni tímabili þegar liðið er kannski ekki vant því að vera í Evrópu eftir að hafa spilað aðeins yfir getu árið á undan,“ „Þá alltaf smá áskorun að koma inn í þetta. En við förum ekkert að panikka eitthvað og ég held þetta sé á uppleið. Ég hlakka bara til að komast aftur og gera mína hluti þar,“ segir Daníel Leó. Fleira kemur fram í viðtalinu við Daníel sem sjá má í spilaranum. Daníel er hluti af íslenska landsliðinu sem mætir Eistlandi í fyrsta leik í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli á morgun. Leikur Íslands og Eistlands hefst klukkan 16:00 á morgun og verður í beinni og opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Danski boltinn Tengdar fréttir Dauði varnarmannsins „Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu. 24. september 2026 08:00 Hvernig á að leysa varnarleikinn? Varnarlína landsliðsins er mörgum hugleikin fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeild karla í fótbolta. Vísir ræddi við tvo leikmenn sem manna líklega öftustu línu í komandi leikjum. 23. september 2026 07:59 Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Breytingar eru hjá Hannover 96, félagi Stefáns Teits Þórðarsonar, sem skipti um þjálfara í gær. Stefán, sem er fyrirliði liðsins, var á ferðalagi til Íslands og mun því ekki hitta þjálfarann fyrr en um miðjan næsta mánuð. 22. september 2026 18:00 Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Sjá meira
Dauði varnarmannsins „Þarf ekki að hafa varnarskóla frekar en tækniskóla?“ spyr Guðlaugur Victor Pálsson og hlær. Hann hefur sterkar skoðanir á varnarhluta íslenska landsliðsins og framtíðarhorfum hvað það varðar. Varnarmenn séu í útrýmingarhættu. 24. september 2026 08:00
Hvernig á að leysa varnarleikinn? Varnarlína landsliðsins er mörgum hugleikin fyrir komandi landsleiki Íslands í Þjóðadeild karla í fótbolta. Vísir ræddi við tvo leikmenn sem manna líklega öftustu línu í komandi leikjum. 23. september 2026 07:59
Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Breytingar eru hjá Hannover 96, félagi Stefáns Teits Þórðarsonar, sem skipti um þjálfara í gær. Stefán, sem er fyrirliði liðsins, var á ferðalagi til Íslands og mun því ekki hitta þjálfarann fyrr en um miðjan næsta mánuð. 22. september 2026 18:00