Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. október 2026 09:01 Þórdís þegar hún sló sitt persónulega met með því að hlaupa 44 hringi í Bakgarðshlaupinu. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Þórdís Ólöf Jónsdóttir er ein þeirra.
Þórdís Ólöf, alltaf kölluð Dísa, er 25 ára landsliðskona í Bakgarðshlaupi. Hún tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Þórdís hefur mest farið 44 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hefst 17. október og verður í beinni útsendingu á Vísi. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa ? Ég byrjaði að hlaupa árið 2019. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt? Mamma mín skráði mig óvænt í fyrsta bakgarðinn minn í maí 2024 og fór ég þá fyrstu 100 km. Ég varð að hætta þá vegna prófs daginn eftir en hef farið eftir það fjórum sinnum, tvisvar lent í öðru sæti, einu sinni í því þriðja og einu sinni unnið. Þórdís Hvern er best að spjalla við í hringnum? Best að eiga gott trúnó með Tomma og Gumma. Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Instant Oats hafragrauturinn er málið og frostpinni inn á milli ef tækifæri gefst. Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Tommi með Oreo kexið sitt á hringnum. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Ver tíma með kærastanum, fjölskyldu og vinum og horfi á fótbolta. Hennar helsti veikleiki er að hún á það til að sjá ofsjónir í brautinni. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Ég ætla fyrst og fremst að sigra sjálfa mig, bæta mitt met og fara eins langt og ég get og hlaupa til sigurs. Ég veit að ég á inni og ætla mér að sýna það. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Ætli það hafi ekki eitthvað með kúk og piss að gera eins og börnin segja, sú saga bíður betri tíma. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? Ætli það sé ekki Öskjuhlíðin. Líðan þar í maí upp á 10,5 og ég elska að hafa tækifæri á að hitta fólkið mitt á hringnum. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Hekla! Þórdís tekur oft lagið í brautinni. Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Styrkleiki minn er þrautseigja mín og seigla og kannski að einhverju leyti fullkomnunarárátta sem birtist í því að ég held mér yfirleitt á stöðugum tíma og ýti mér áfram þótt erfiðlega gangi. Veikleikinn er að geta dottið í að sjá ofsjónir. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Ég hef slegið sjálfan mig vægt utan undir til að halda mér vakandi. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Tommi með sitt pepp og sínar sögur. Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Unwritten, þið heyrið mig öskursyngja það í brautinni, það má endilega taka undir. Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Ég myndi lýsa mér sem aðila með hlaupadellu á háu stigi sem gerir allt fyrir fólkið sitt og hefur alltaf tíma til að horfa á góðan fótboltaleik. Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Knúsa fólkið mitt fyrir að vera með mér í þessu, svo klikkar seint sauna og pottur og ís eftir á. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Alveg pottþétt ég bara, var virkilega dugleg í því í maí til að stytta mér stundirnar. Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? Hvatning, þrautseigja, dugnaður.
Bakgarðshlaup Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Sjá meira