Sport

Úrvalsdeildarfélög undir­búa mál­sókn gegn City

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manchester City mun áfrýja öllum refsingum. 
Manchester City mun áfrýja öllum refsingum.  Vísir/Alex Livesey - Danehouse/Getty Images

Fjöldi félaga í ensku úrvalsdeildinni undirbýr nú mögulegar málsóknir gegn Manchester City eftir að félagið var fundið sekt um 114 af 115 brotum á fjárhagsreglum deildarinnar.

The Athletic greinir frá því að nokkur félög hafi um nokkurt skeið leitað til þekktra lögfræðinga til að kanna hvort þau geti krafið City um skaðabætur vegna meintra brota félagsins. Viðræður milli félaga hafa nú færst í aukana og sérstaklega eftir tíðindi dagsins.

Lögfræðistofur hafa jafnframt haft samband við félög og upplýst þau um að þau kunni að eiga rétt á að sækja bætur ef í ljós kæmi að City hefði brotið reglur úrvalsdeildarinnar.

Dæmi er um að félag hafi þurft að greiða öðru félagi háar bætur vegna brota á fjárhagsreglum. Í júní var Everton gert að greiða Burnley 35,1 milljón punda eftir að óháð nefnd komst að þeirri niðurstöðu að brot Everton á reglum um hagnað og sjálfbærni tímabilið 2021-22 hefðu veitt félaginu mikilvægt forskot.

Fordæmisgefandi

Þá var talið að niðurstaðan gæti skapað fordæmi fyrir sambærileg mál og það fordæmi gæti nú skipt máli fyrir félög sem vilja sækja City til saka.

Mögulegar kröfur gætu meðal annars snúist um það að félög hafi misst af þátttöku í Meistaradeild Evrópu vegna meintra brota City. Þá gætu félög einnig haldið því fram að þau hafi misst af tekjum vegna styrktarsamninga og árangurstengdra bónusa.

Hafna öllu

Samkvæmt The Athletic er jafnvel rætt um að málið gæti orðið að sameiginlegri skaðabótakröfu, þar sem fleiri úrvalsdeildarfélög tækju höndum saman gegn Manchester City.

City hefur hafnað ásökunum í málinu og er búist við að félagið muni áfrýja niðurstöðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×