„Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 25. september 2026 21:27 Brittany Dinkins var öflug í liði Njarðvíkur Hulda/Vísir Íslandsmeistarar Njarðvík unnu góðan fimm stiga sigur 83-78 á Bikarmeisturum Keflavíkur þegar liðin mættust í meistarakeppni KKÍ í IceMar höllinni í kvöld. Brittany Dinkins leikmaður Njarðvíkur ræddi við Vísi eftir leik. „
Sigur er allaf sigur auðvitað“ sagði Brittany Dinkins eftir sigur Njarðvíkur í kvöld en hún endaði stigahæst í liði Njarðvíkur með 19 stig. „Við getum gert betur. Keflavík mættu okkur vel í kvöld og fullt hrós á þær fyrir að mæta með baráttu og við áttum okkur alveg á því að þær settu tóninn fyrir hvernig tímabilið mun verða en það er alltaf góð tilfinning að ganga í burtu með sigur“ Það er alltaf mikil stemning og fjör þegar þessi lið mætast og á því varð enginn breyting í kvöld. „Þær börðust vel og gerðu þetta að alvöru leik. Ég er mjög ánægð að tímabilið sé að byrja og fólkið okkar mætti og studdi okkur. Þetta er það sem þú færð þegar Njarðvík og Keflavík mætast“ „Þetta verður alltaf barátta og þetta verða aldrei auðveldir leikir. Það mun ekkert lið mæta hingað og gefa okkur einhvern slaka. Í kvöld var þetta mjög skemmtilegt en þetta mun verða erfitt“ Nýtt tímabil hefst strax á þriðjudaginn og Brittany Dinkins segir að Njarðvíkurliðið verði að mæta einbeittar til leiks. „Fyrir tímabilið í ár þurfum við að mæta beitt og vera tilbúnar í alla leiki. Við getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka neitt á og halda að við getum komist í gegnum gegnum þetta með hálfum hug“ „Við þurfum að mæta alla daga, öll kvöld og mæta tilbúnar til að spila körfubolta. Þannig sé ég þetta tímabil spilast og ég er mjög spennt fyrir því og fyrir öllum hinum liðunum sem eru að mæta sterkari til leiks“ Njarðvík eru búnar að vinna fyrsta titilinn af þrem sem eru í boði á tímabilinu. „Það eru alltaf markmið og við viljum vera keppa um alla titla“ sagði Brittany Dinkins.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira