„Ég hafna samningi þeirra“ Rafn Ágúst Ragnarsson og Agnar Már Másson skrifa 26. september 2026 21:30 Trump ræddi við blaðamenn við komu sína í Hvíta húsið í dag. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“.
Þettta sagði hann við fréttamenn í Hvíta húsinu í dag. Tók hann svo til orða að Írönsk stjórnvöld hafi viljað „gera samning þar sem þau opni sundið strax vegna þess að Íranir væru að tapa svo illa“. Í gær sagði Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, í samtali við fréttamenn að samkomulag gæti náðst „ef nauðsynleg skilyrði væru uppfyllt“ og að þau væru í viljayfirlýsingu sem löndin tvö undirrituðu í júní. Samkomulagið entist skammt Þar vísar Araghchi til fjórtán liða viljayfirlýsingar sem Bandaríkin og Íran náðu saman um í júní eftir nokkurra mánaða átök. Markmiðið var að koma á vopnahléi og opna Hormússund að minnsta kosti að hluta á meðan samið yrði um lausn á deilunni til lengri tíma. Íranar skuldbundu sig meðal annars til þess að heimila frjálsa umferð kaupskipa um sundið og ítrekuðu að þeir myndu ekki koma sér upp kjarnorkuvopnum. Á móti fól samkomulagið meðal annars í sér að hernaðaraðgerðum yrði hætt og að Bandaríkin létu af hafnbanni og efnahagsþvingunum. Samkomulagið hélt hins vegar ekki. Báðir aðilar hófu hernaðaraðgerðir að nýju og Íranar hafa ráðist á skip sem þeir segja hafa reynt að fara um sundið án leyfis. Bandaríkin hafa á sama tíma ráðist á írönsk mannvirki við sundið og olíuskip undan ströndum landsins og haldið áfram hafnbanni sem hefur valdið íranska hagkerfinu miklum búsifjum. Írönsk stjórnvöld halda því nú fram að ekki þurfi nýjan samning heldur aðeins að Bandaríkin efni það sem þegar hafi verið ákveðið í júní. Trump-stjórnin virðist hins vegar líta svo á að það samkomulag sé úr sögunni. Fimmtungur allra olíuvara heims um sundið Hormússund hefur verið verulega lokað fyrir hefðbundinni skipaumferð frá því að stríðið hófst í lok febrúar. Bandaríkin og Ísrael hófu þá umfangsmiklar loftárásir á Íran. Ali Khamenei, þáverandi æðstiklerkur Írans, féll í árásunum ásamt fjölda háttsettra íranskra embættismanna og herforingja. Íranar svöruðu með eldflauga- og drónaárásum á Ísrael og bandarískar herstöðvar í Persaflóaríkjum. Í byrjun mars lýstu írönsk stjórnvöld Hormússundi lokuðu og hótuðu að ráðast á skip sem reyndu að sigla þar um án heimildar. Sundið er þröng sjóleið milli Írans annars vegar og Ómans og Sameinuðu arabísku furstadæmanna hins vegar og er ein mikilvægasta flutningaleið olíu í heiminum. Fyrir stríð fór meira en fjórðungur allrar olíu sem flutt var sjóleiðina um Hormússund. Það jafngilti um fimmtungi allrar olíu í heiminum. Um fimmtungur heimsviðskipta með fljótandi jarðgas fór sömuleiðis um sundið, einkum frá Katar. Lokunin hefur því haft áhrif langt út fyrir Persaflóann. Olíuverð hækkaði mikið á fyrstu mánuðum stríðsins og hráolíuverð fór hæst í 118 dali á tunnuna í lok apríl. Truflanirnar urðu jafnframt til þess að ríki og fyrirtæki leituðu annarra leiða til að koma olíu á heimsmarkað. Umferðin hefur þó ekki stöðvast með öllu. Samkvæmt gögnum sem Reuters hefur eftir greiningarfyrirtækinu Kpler hafa að undanförnu að meðaltali um átján skip á dag farið um sundið, samanborið við mun meiri umferð fyrir stríð. Kosningar fram undan Efnahagslegar afleiðingar lokunarinnar hafa aukið þrýsting á Trump að finna leið út úr stríðinu, ekki síst nú þegar styttist í þingkosningar í Bandaríkjunum í nóvember. Hærra olíuverð hefur jú bein áhrif á bensínverð og verðbólgu þar í landi. Trump hefur þó gefið lítið fyrir þær sáttaumleitanir sem fram hafa farið í New York í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Í ræðu sinni þar fyrr í vikunni sagðist hann telja líklegra að samkomulag næðist eftir þingkosningarnar. Wall Street Journal hafði jafnframt eftir embættismönnum á föstudag að Trump væri efins um að Íranar myndu fallast á kröfur Bandaríkjanna og teldi líklegt að umfangsmiklar loftárásir á Íran hæfust að nýju. Staðan önnur en í júní Frakkar hafa unnið að nýrri ályktun fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlegt átak til að tryggja frjálsa siglingu um Hormússund. Fyrri tilraunir í þá áttina hafa meðal annars strandað á andstöðu Rússa og Kínverja. Íranar halda því fram að hægt sé að leysa deiluna með því að hverfa aftur að samkomulaginu frá júní. Bandaríkjaforseti gefur hins vegar til kynna að staðan sé önnur nú en þá og að hann telji Bandaríkin hafa yfirhöndina. „Þeir vilja semja,“ sagði Trump í dag. „Mér finnst líka gaman að semja. En þessi samningur væri ekki ásættanlegur.“
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira