Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Sindri Sverrisson skrifar 28. september 2026 09:04 Líf Joostdóttir van Bemmel fer í næstu viku í sína fyrstu ferð með A-landsliði Íslands, til Króatíu í HM-umspil. vísir/Sigurjón Líf Joostdóttir van Bemmel heldur upp á 19 ára afmæli sitt í Króatíu í næstu viku því hún hefur nú í fyrsta sinn verið valin í íslenska A-landsliðið í fótbolta. Það toppar stórkostlegt sumar hjá þessum leifturhraða, hollenskættaða leikmanni Breiðabliks. „
Við förum út fimmta október og ég á afmæli sjötta. Ég ætla rétt að vona að stelpurnar viti það. Ég er mjög mikið afmælisbarn þannig að við ætlum að fagna úti,“ sagði Líf og hló létt þegar hún ræddi við Vísi fyrir helgi, eftir að hafa verið valin í íslenska landsliðið. Eftir að hafa komist með íslenska U19-landsliðinu í lokakeppni EM í sumar, og skorað þar í leik við Sviss, reynir Líf nú að leggja sitt af mörkum svo að A-landslið Íslands komist á HM í fyrsta sinn. „Steini hringdi í mig og sagði að ég hefði verið valin. Ég var ekkert eðlilega glöð. Hljóp til mömmu og lét hana vita. Þetta er búið að vera draumur síðan maður byrjaði í fótbolta. Búin að stefna að þessu síðustu ár og vonaðist eftir þessu á næstu árum. Ég er mjög glöð að hafa fengið traustið núna. Ég er ótrúlega spennt að hitta stelpurnar og kynnast þeim. Tveir hörkuleikir á móti Króatíu og vonandi gengur það sem allra best. Ég stóð mig persónulega mjög vel á EM U19 og það gekk heilt yfir mjög vel hjá okkur,“ segir Líf en viðtalið við hana má sjá hér að neðan. Klippa: Líf fékk drauminn uppfylltan Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari sagðist velja Líf í íslenska hópinn sem bakvörð og Líf, sem fólk er kannski vanara að sjá framar á vellinum, kveðst afar ánægð með það. Mældist á ógnarhraða á æfingu „Ég hef eiginlega alltaf verið frammi eða á kanti með Breiðabliki en svo bakvörður með landsliðinu. Ég er fljótur leikmaður og það hentar mjög vel í bakverði.“ En hvaðan kemur þessi hraði? „Ég veit það ekki. Ég hef bara alltaf verið hröð og það er mikið í mínum leik,“ segir Líf sem mældist á ógnarhraða á æfingu á dögunum. Það voru þó ekki alveg réttar tölur: „Ég var aðeins að kasta „kubbnum“ [sem notaður er til að mæla hraða leikmanna] í lok æfingar. Það voru ekki alveg réttar tölur en hámarkshraðinn er búinn að hækka töluvert síðustu ár.“ Fótboltagenin frá pabba Líf er dóttir þeirra Helgu Bjarnarson og Joost van Bemmel. Pabbi hennar er hollenskur en hefur búið á Íslandi lengur en Líf sjálf og talar reiprennandi íslensku. Hollendingar eru mikil fótboltaþjóð en eru fótboltagenin úr föðurættinni? „Þau koma allavega ekki frá mömmu,“ segir Líf hlæjandi og bætir við: „Þau koma frá Hollendingnum.“ Líf er á toppi Bestu deildarinnar með Breiðabliki, í góðri stöðu eftir úrslit helgarinnar þar sem hún lagði upp mark í sigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. Næst á dagskrá hjá Blikum er seinni leikurinn við pólsku meistarana í Czarni Sosnowiec á morgun, í 2. umferð forkeppni Evrópubikarsins, en þar er liðið þó í hálfómögulegri stöðu eftir 6-2 skell á heimavelli. Eftir það tekur við leikur gegn Þrótti næsta sunnudag áður en Líf fer með landsliðinu til Króatíu, í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM í Brasilíu. Útileikurinn við Króatíu er 9. október klukkan 16:45 en heimaleikurinn á Laugardalsvelli 13. október klukkan 17:30.
Landslið kvenna í fótbolta Breiðablik Tengdar fréttir „Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í góðu tækifæri til að komast á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Brasilíu á næsta ári. Liðið mætir Króatíu í undanúrslitum undankeppninnar um farmiða á heimsmeistaramótið og verða spilaðir leikir heima og heiman. 25. september 2026 09:00 „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Þorstein Halldórsson landsliðsþjálfara dreymir ekki síður en leikmenn um að komast á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu næsta sumar. Tvö ljón eru á veginum og framundan mun sanngjarnara umspil en þegar HM-draumurinn dó í Portúgal fyrir fjórum árum. 24. september 2026 13:49 Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Líf Joostdóttir van Bemmel úr Breiðabliki og Emelía Óskarsdóttir, framherji Danmerkurmeistara Köge, eru báðar í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu í tveimur leikjum í fyrri umferð umspils um sæti á HM í Brasilíu. 24. september 2026 13:08 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira
„Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í góðu tækifæri til að komast á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Brasilíu á næsta ári. Liðið mætir Króatíu í undanúrslitum undankeppninnar um farmiða á heimsmeistaramótið og verða spilaðir leikir heima og heiman. 25. september 2026 09:00
„Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Þorstein Halldórsson landsliðsþjálfara dreymir ekki síður en leikmenn um að komast á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu næsta sumar. Tvö ljón eru á veginum og framundan mun sanngjarnara umspil en þegar HM-draumurinn dó í Portúgal fyrir fjórum árum. 24. september 2026 13:49
Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Líf Joostdóttir van Bemmel úr Breiðabliki og Emelía Óskarsdóttir, framherji Danmerkurmeistara Köge, eru báðar í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu í tveimur leikjum í fyrri umferð umspils um sæti á HM í Brasilíu. 24. september 2026 13:08