„Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kjartan Kjartansson skrifar 29. september 2026 09:56 Koparháfurinn er um fjögurra metra langur. Hann svamlaði fyrst upp skipaskurðinn í Busan í Suður-Kóreu 18. september. Vísir/EPA Síki er orðið helsti ferðamannastaður hafnarborgarinnar Busan í Suður-Kóreu eftir að stór koparháfur villtist þangað fyrr í þessum mánuði. Rúmlega sex hundruð þúsund manns hafa heimsótt staðinn undanfarna daga og hákarlinn fengið nafnbótina „háfhrifavaldur“.
Kopaháfurinn birtist í þröngu síki í Busan, stærstu hafnarborg Suður-Kóreu, 18. september. Líffræðingar telja að háfurinn hafi elt bráð upp síkið en ekki ratað aftur út á haf. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess að smala hákarlinum úr síkinu og út í sjó en án árangurs. Meðal annars reyndu áhafnir landhelgisgæslubáta að spauta vatni úr háþrýstidælum fyrir aftan háfinn til þess að stugga honum í átt að mynni síkisins. Í millitíðinni nýtur koparháfurinn gríðarlegra vinsælda. Garðurinn sem síkið liggur um fékk 607 þúsund heimsóknir frá 19. til 28. september en vanalega koma um 2.000 gestir þangað á dag. Borgaryfirvöld í Busan útnefndu hákarlinn heiðurssendiherra borgarinnar. Hann gengur undir nafninu Bukang-i í höfuðið á norðurhöfn Busan. Þá hlaut hann nafnbótina „Háfhrifavaldur“ (e. Shafluencer), að því er segir í frétt The Guardian. Hækkandi sjávarhiti lykilbreyta Vísindamenn segja að hákarlinn sé við stöðuga heilsu eins og er. Þeir hafa hins vegar áhyggjur af því að háfurinn fái ekki nóga fæðu eða hreyfingu ef hann kemst ekki fljótlega aftur til náttúrulegra heimkynna sinna. Hlýnun sjávar af völdum manna gæti átt þátt í því að hákarlinn hafi villst upp síkið. Choi Youn, heiðursprófessor í sjávarlíffræði við Kunsan-háskóla í Suður-Kóreu, segir að fisktegundir sem hákarlarnir lifa á hafi fært sig norður á bóginn vegna hlýnunar sjávar. Hákarlarnir hafi fylgt á eftir. „Hækkandi sjávarhiti verið vera grundvallarþáttur,“ segir Choi við The Korean Times. Þegar koparháfar festist í lokuðum svæðum hafi þeir tilhneigingu til þess að synda eftir jörðum og hringsóla endalaust í eina átt. Það telur Choi ástæðu þess að hákarlinn rati ekki út úr síkinu.
Suður-Kórea Hafið Loftslagsmál Dýr Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira