Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. september 2026 08:01 Rapparinn hefur verið í brasi undanfarin ár. EPA/ALLISON DINNER Hætt hefur verið við tvenna tónleika sem rapparinn Ye betur þekktur sem Kanye West átti að halda í Rússlandi í október. Ástæðan virðist vera sú að samningar hafi aldrei tekist á milli eigenda tónleikahalla og skipuleggjenda.
Rússneski miðillinn Moscow Times greinir frá málinu og segir að vísbendingar séu einnig um að stjórnvöld í Rússlandi hafi beitt sér í málinu. Fortíð Kanye og fullyrðingar um stuðning hans við nasisma hafi farið öfugt ofan í íhaldssama stjórnmálamenn í Rússlandi en stuðningur við nasisma er bannaður með lögum í landinu. Tónleikarnir áttu að fara fram 10. og 11. október í Gazprom-höllinni í Sankti Pétursborg en forsvarsmenn hallarinnar segja nú að þeir hafi aldrei skrifað undir samning um málið við skipuleggjendur á mála Say Agency. Skipuleggjendur hafi þó þráast við að segja nokkuð um að hætt verði við tónleikana þar til nú. Kanye hefur verið í töluverðu brasi með sjálfan sig síðustu ár og verið harðlega gagnrýndur fyrir andgyðingleg ummæli sín, notkun á hakakrossi nasista í varningi sínum og útgáfu lagsins „Heil Hitler.“ Rapparinn hefur haft litlar áhyggjur af innrás Rússa í Úkraínu og heimsótti meðal annars Moskvu árið 2024 þegar hann sótti afmæli tískuvöruframleiðandans Gosha Ruchinskiy. Fram kemur í umfjöllun Moscow Times að þó sé ekki loku skotið fyrir það enn að tónleikar hans muni fara fram síðar í Rússlandi. Tyrkneskir skipuleggjendur sem skipulagt hafi tónleika hans í Istanbúl í Tyrklandi í maí hafi birt auglýsingu um að tónleikar muni fara fram 10. júlí 2027. Forsvarsmenn Luzhniki hallarinnar hafi sagt að þeir séu reiðubúnir til að taka við keflinu frá forsvarsmönnum Gazprom hallarinnar.
Rússland Mál Kanye West Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Kanye West, eða Ye, greiddi fyrir heilsíðuauglýsingu í Wall Street Journal sem kom út í dag, þar sem hann baðst afsökunar á framferði sínu undanfarin ár. Yfirlýsingin sem birt var er titluð „Til þeirra sem ég hef sært“ og beinir hann afsökunarbeiðni sinni sérstaklega til þeldökkra Bandaríkjamanna og gyðinga. 26. janúar 2026 20:33 Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Kanye West, eða Ye, greiddi fyrir heilsíðuauglýsingu í Wall Street Journal sem kom út í dag, þar sem hann baðst afsökunar á framferði sínu undanfarin ár. Yfirlýsingin sem birt var er titluð „Til þeirra sem ég hef sært“ og beinir hann afsökunarbeiðni sinni sérstaklega til þeldökkra Bandaríkjamanna og gyðinga. 26. janúar 2026 20:33