Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Oddur Ævar Gunnarsson og Telma Tómasson skrifa 30. september 2026 09:11 Nemendur rífa niður umferðarljós við Baggio-framhaldsskólann í Lille í Frakklandi. AP Photo/Jean-Francois Badias Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag.
Innanríkisráðherra landsins sagði í frönskum fjölmiðlum að þriðjungur skólabarnanna hefði endað í varðhaldi lögreglu. Róstur varð í um fjögur hundruð skólum, en mótmælin hófust í París í síðustu viku og hafa síðan magnast og breiðst út um allt landið. Í gær kveiktu framhaldsskólanemar í Lille, í norðurhluta Frakklands, í ruslatunnum og köstuðu flöskum, gangstéttarhellum og öðru lauslegu í lögregluna. Lögreglumenn svöruðu með táragasi eftir að mótmælendur skemmdu biðskýli strætisvagna og auglýsingaskilti, eftir því sem fram kemur í frétt Guardian. „Ekkert réttlætir það að mæta til stofnana til að mótmæla, með grímur, með hulið andlit, vopnuð skotvopnum og bíða eftir íhlutun lögreglu bara til að ráðast á hana,“ segir Laurent Nunez innanríkisráðherra Frakklands. Hann segir að í átökunum í gær hafi saltsýru verið kastað á lögreglumenn í sjö tilvikum. Alls hafi 48 lögreglumenn slasast í átökunum víðs vegar um landið. Einnig kom til átaka milli barna og lögreglu í Bordeaux, Rennes og Nantes í vesturhluta Frakklands og í Marseille í suðurhlutanum. Við Lamartine-menntaskólann í norðurhluta Parísar veifuðu nemendur skiltum þar sem kvartað var yfir of löngum stundatöflum. Á einu þeirra stóð: „8:00–18:00. Fleiri kennslustundir en svefnstundir.“
Frakkland Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira