Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar 30. september 2026 12:30 Í umræðum á Samstöðinni á sl. mánudag bar á góma hvort stofnanir EFTA og/eða EES gætu gegnt stærra hlutverki í framtíðarsamstarfi Evrópuríkja og jafnvel út fyrir það eins og t.d. Kanada. Þar opnaðist spurning sem á meira erindi í íslenska umræðu: Getur fyrirkomulagið sem Ísland tekur þegar þátt í orðið grunnur að nýjum samstarfsleiðum í Evrópu? Umræðan hér hefur lengi snúist um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. EES-samningurinn er þá ýmist metinn út frá því hvað hann veiti okkur miðað við aðild eða hvað okkur skorti vegna þess að við stöndum utan sambandsins. Minna fer fyrir umræðu um hvernig þróa megi samstarfið sjálft og hvaða hlutverki Ísland geti gegnt í þeirri þróun. Evrópa er stærri en ESB Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, setur fram áhugaverða hugsun í nýlegri færslu á LinkedIn, en hann er virkur í að miðla hugsunum sínum og skoðunum á þeim miðli. Hann talar um „aðra sál Evrópu“ og lýsir þeirri samstarfshefð sem EFTA hafi lengi verið fulltrúi fyrir: frjálsum viðskiptum, fyrirsjáanlegum réttarreglum, sjálfstjórn ríkja og opnun út á við. Í þeirri hugsun felst að evrópskt samstarf geti tekið fleiri myndir en sífellt nánari pólitískur samruni. Ríki geti átt umfangsmikið efnahagslegt og lagalegt samstarf og jafnframt varðveitt svigrúm til að velja eigin leiðir. Þetta snýst líka um hver fær að skilgreina Evrópu. Sé Evrópusambandið látið standa fyrir álfuna alla verður auðvelt að lýsa ríkjum utan þess sem einhvers konar utangarðsríkjum. Þá hverfur úr sjónmáli að þau taka þegar þátt í mótun evrópsks samstarfs og geta lagt til lausnir sem henta ólíkum þörfum ríkja. Baudenbacher telur EES/EFTA-fyrirkomulagið varðveita þessa aðra hefð. Í hans augum er það hvorki söguleg tilviljun né áfangastaður á leið inn í ESB, heldur sjálfstætt samstarfsform sem eigi erindi við framtíðina. Stofnanir sem geta boðið fjölbreyttari möguleika Þarna tengist hugmynd hans umræðunni á Samstöðinni. Hugtakið docking hefur verið notað um tillögur sem fela í sér að ríki tengist stofnunum EFTA, svo sem EFTA-dómstólnum og Eftirlitsstofnun EFTA, vegna samninga við ESB án þess að taka upp fulla aðild að EES. Slíkar hugmyndir voru meðal annars ræddar í tengslum við Bretland eftir Brexit. Mikilvægt er að greina slíka stofnanatengingu frá aðild að EES. Hún veitir ekki sjálfkrafa sömu markaðsaðild og samningurinn tryggir og umfang hennar þyrfti að ráðast af sérstökum samningum. Gildi hugmyndarinnar felst í því að nýta stofnanir og reynslu sem þegar eru til við að leysa ný samstarfsverkefni. Fyrir Ísland er hér áhugavert viðfangsefni. Landið gæti lagt sitt af mörkum til að kanna hvort stofnanakerfi EFTA henti fleiri ríkjum eða fleiri gerðum samninga. Til þess þarf skýra sýn á eigin hagsmuni og á það hvernig slík þróun gæti styrkt samstarfið. Í þessu samhengi hefur Baudenbacher einnig bent á að Evrópusambandið sjálft hafi hag af því að varðveita EES-samstarfið og stofnanakerfi þess. Þar sé fyrir hendi grundvöllur sem mætti nýta við að þróa tengsl við fleiri ríki, svo sem Bretland, Sviss og Tyrkland og jafnvel ríki utan Evrópu, á borð við Kanada. Fyrirkomulagið þyrfti ekki að vera hið sama í öllum tilvikum. Verðmætið felst einmitt í möguleikanum á að byggja á rótgrónum stofnunum og reynslu við mótun ólíkra samstarfsleiða. Viðvaranir um að höfnun Íslendinga á aðildarviðræðum kunni að draga úr vilja ESB til að viðhalda EES-samstarfinu líta fram hjá þessum hagsmunum sambandsins. Gildi samstarfsins fyrir ESB ræðst ekki af því hvort Ísland stefni að aðild. Það getur einnig falist í að varðveita traustan grundvöll fyrir víðtækara samstarf við ríki sem standa utan þess. Það krefst líka raunsæis. EES-samstarfið felur í sér umfangsmiklar skuldbindingar og álitaefni um áhrif ríkjanna á reglurnar sem þau taka upp. Nýjar samstarfsleiðir þyrftu að taka mið af þeirri reynslu og tryggja að ábyrgð, réttindi og lýðræðislegt aðhald væru skýr. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að hefja ekki aðildarviðræður að nýju gefur tilefni til að beina sjónum að þessum möguleikum. Evrópusamstarf heldur áfram að þróast og Ísland þarf að hafa sjálfstæða sýn á þá þróun. Spurningin er því hvernig Ísland vill nýta stöðu sína, reynslu og stofnanir til að móta samstarf sem þjónar hagsmunum landsins. EES og EFTA eiga skilið að vera rædd með það að leiðarljósi. Höfundur er hagfræðingur með diplóma í opinberri stjórnsýslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar