Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Valur Páll Eiríksson skrifar 30. september 2026 15:25 Cristiano Ronaldo tók frekjukast þegar hann fékk ekki að spila gegn Noregi á sunnudaginn og krísufundur var haldinn í dag. Getty/Omar Vega Cristiano Ronaldo situr krísufund ásamt landsliðsþjálfara Portúgals og forseta knattspyrnusambands landsins eftir að hafa setið allan tímann á bekknum í leik við Noreg í vikunni.
Portúgalskir miðlar greindu frá málinu í dag. Ronaldo, sem hefur verið stjarna portúgalska liðsins um árabil, var ónotaður varamaður í landsleik í fyrsta sinn í 18 ár, síðan árið 2008. Ronaldo er leikhæsti og markahæsti landsliðsmaður sögunnar og langar enn að bæta við. Skiptar skoðanir eru um hlutverk hans með portúgalska landsliðinu þessi dægrin þar sem hann er orðinn 41 árs gamall og á til að vera dragbítur varnarlega. Samkvæmt portúgölskum miðlum var Ronaldo allt annað en sáttur við að hafa þurft að sitja á bekknum í 90 mínútur er Portúgal vann 2-1 útisigur á Noregi á sunnudaginn var. Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgal, á að hafa lofað Ronaldo að hann spilaði 30 mínútur hið minnsta í leiknum. Ronaldo spilaði ekkert og neitaði í kjölfarið að taka þátt í æfingu með leikmönnum sem spiluðu ekki og farið í ræktina í staðinn. Ronaldo hafi brugðist ókvæða við bekkjarsetunni og brostnu loforði nýja landsliðsþjálfarans og snarlega haft samband við Pedro Proença, forseta portúgalska knattspyrnusambandsins. Proença hafi mætt til Kaupmannahafnar í dag til að reyna að leysa málin milli Ronaldo og Jesus fyrir leik við Danmörku á morgun. Niðurstaða fundarins liggur ekki fyrir en áhugavert verður að sjá hvort Ronaldo fái að spila þegar Portúgalir sækja Dani heim annað kvöld. Leikur Danmerkur og Portúgal er klukkan 18:45 á morgun og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.
Þjóðadeild karla í fótbolta Portúgalski boltinn Sádiarabíski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti