Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir og Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifa 1. október 2026 07:02 Þeir einstaklingar sem flytja á hjúkrunarheimili gera það vegna þess að þeir þurfa sólarhringsþjónustu sem ekki er hægt að veita í heimahúsi. Ástæða þessa getur verið mismunandi en það er staðreynd að stór hluti þeirra sem búa á íslenskum hjúkrunarheimilum eru með heilabilunarsjúkdóm á misalvarlegu stigi. Í Kveiksþætti sem sýndur var þriðjudaginn 29. september sl. var fjallað um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum og látið að því liggja að hún væri of mikil og að það væri lausnin sem gripið væri til af því að það væri ekki nægt starfsfólk eða einfaldlega að það væri ekki verið að sinna fólki nægilega vel. Í þessu samhengi þá langar okkur að koma með nokkrar athugasemdir. # Þegar verið er að fjalla um málefni eins og þetta þá er eiginlega lágmark að það sé rætt við fagfólk sem er að sinna þjónustunni í dag og er þar af leiðandi með fingurinn á púlsinum varðandi málefnið # Það er líka mikilvægt að horfa á málefnið frá öllum hliðum en ekki bara einblína á einn þátt þess. Það vantaði algerlega að ræða við einstaklinga sem hafa haft góða upplifun # Lyf eru ekki vond og að það sé sett þannig fram að geðlyf séu vond er í best falli einföldun og í versta falli stigmatisering á þeim sjúkdómum sem þeim er ætlað að vinna á móti # Það er líka mikilvægt að þegar verið er að bera saman hluti að þá séu það sambærilegir hlutir sem verið er að skoða. Að horfa á eitt hjúkrunarheimili í Hollandi og bera það saman við öll hjúkrunarheimili á Íslandi er alls ekki eðlilegt. Þetta ákveðna hjúkrunarheimili fylgir hugmyndafræði sem felur í sér að það er ekki mikið gert, heldur ekki ef einstaklingur dettur og brotnar eða ef hann veikist alvarlega. Einstaklingar sem fara á þetta heimili eru líka margir hverjir komnir styttra á veg í sínum sjúkdómi en þeir íbúar sem eru á íslenskum hjúkrunarheimilum og því er þetta alls ekki samanburðarhæft. # Ef verið er að tala um geðrofslyf þá er gríðarlega mikilvægt að horft sé til skammtastærða. Þær skammtastærðir sem verið er að nota á hjúkrunarheimilum í þessum aðstæðum eru margfalt lægri en skammtar sem gefnir eru þegar um er að ræða geðklofa eða geðhvörf og því er þetta alls ekki sambærilegt. # Geðlyfjanotkun er mikil á Íslandi almennt og því er ekki við öðru að búast en að sú notkun fylgi inn á hjúkrunarheimili landsins. Að setja hlutina fram þannig að hjúkrunarheimilum sé um að kenna er ámælisvert og ábyrgðarhluti og ekki til þess fallið að þjóna neinum tilgangi. Í raun er það svo að geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum á Íslandi er mun meira í takt við það sem gengur og gerist í nágrannalöndunum heldur en geðlyfjanotkun úti í samfélaginu, sem er yfirleitt mun meiri á Íslandi en í löndunum sem við berum okkur saman við. Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt þar sem raunverulega er horft til þeirrar góðu starfsemi sem unnin er á hjúkrunarheimilum á Íslandi. Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga Landspítala, og Hjördís Halldóra Sigurðardóttir, deildarstjóri Legudeildar minnisraskana L4 á Landspítala. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Hjúkrunarheimili Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar