Erlent

Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði?

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fundurinn hefst klukkan 9:30.
Fundurinn hefst klukkan 9:30. Getty

Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði.

Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlaunin. Blaðamannafundurinn fer fram í Stokkhólmi og hefst klukkan hálf tíu að íslenskum tíma.

Á síðasta ári fengu Mary E. Brunkow, Fred Ramsdell og Shimon Sakaguchi Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar varðandi útþol á sviði ónæmisrannsóknar.

Tilkynnt um handhafa Nóbelsverðlaunanna 2026

Mánudagur 5. október: Lífeðlis- og læknisfræði

Þriðjudagur 6. október: Eðlisfræði

Miðvikudagur 7. október: Efnafræði

Fimmtudagur 8. október: Bókmenntir

Föstudagur 9. október: Friðarverðlaun Nóbels

Mánudagur 12. október: Hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×