Viðskipti innlent

Lang­þráður draumur að verða að veru­leika í Kísil­dal

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ómar Þór Ómarsson er á leið í Kísildalinn að láta draum sinn rætast.
Ómar Þór Ómarsson er á leið í Kísildalinn að láta draum sinn rætast. Aðsend

Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Optise, segir langþráðan draum verða að veruleika í október þegar hann heldur út til Bandaríkjanna sem fulltrú fyrsta íslenska fyrirtækisins til að taka þátt í Startup Battlefield, sprotakeppni tæknimiðilsins TechCrunch.

„Mig hefur dreymt um að keppa á þessu sviði síðan ég sat heima í sófanum og horfði á Silicon Valley, bandarísku gamanþættina frá HBO sem gerast í sprotaheiminum í Kísildal. Í fyrstu þáttaröðinni stígur aðalpersónan Richard á svið á TechCrunch Disrupt með skáldaða sprotafyrirtækið sitt, Pied Piper, og vinnur keppnina. Rúmum tíu árum síðar er ég á leiðinni þangað sjálfur,“ segir Ómar Þór.

Keppnin er tuttugu ára gömul og velur ritstjórn TechCrunch á hverju ári úr þúsundum umsókna í hóp tvö hundruð sprotafyrirtækja og býður þeim að kynna lausn sína á tækniráðstefnunni TechCrunch Disrupt í San Francisco 13. til 15. október. Sigurvegari Startup Battlefield er svo krýndur á lokadegi ráðstefnunnar 15. október. Optise keppir í flokki hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki, þar sem 29 fyrirtæki keppa.

„Startup Battlefield er elsta og virtasta sprotakeppni heims. Þar stigu fyrirtæki á borð við Dropbox, Cloudflare, Discord og Fitbit sín fyrstu skref á stóra sviðinu,“ segir Ómar spenntur.

„Við stígum á svið í okkar flokki 14. október.“

Stofnendur Optise. Aðsend

Þrjár flóknar umferðir

Hann segir keppnina fara fram í þremur umferðum.

„Í fyrstu umferð keppa fyrirtækin 200 í riðlum eftir flokkum og hvert þeirra fær tvær mínútur á sviðinu til að kynna lausnina sína. Engar glærur, engin myndbönd. Bara ein manneskja á sviðinu að sannfæra heiminn. Fyrirtækið sem sigrar sinn riðil kemst áfram,“ segir hann og úr riðlunum séu tuttugu fyrirtæki valin til að keppa á aðalsviðinu.

„Þar fær hvert fyrirtæki sex mínútur til að kynna fyrirtækið og sýna lausnina í beinni, og svarar svo spurningum dómnefndar sem skipuð er nokkrum af þekktustu fjárfestum Bandaríkjanna,“ segir hann en áhugasamir munu geta fylgst með þessari kynningu í opnu streymi.

Hann segir fimm fyrirtæki svo komast áfram í lokaúrslit og fá þá aftur tækifæri til að kynna fyrir nýrri dómnefnd. Sigurvegarinn, sem kynntur verður 15. október, hlýtur svo um tólf milljónir í verðlaun og Disrupt-bikarinn.

Sjálfur flaug Ómar út á föstudag og verður því úti í um tvær vikur.

„Við förum þrír saman. Ég, Vignir Jónsson tæknistjóri og Hilmar Geir Eiðsson vörustjóri. Við stofnuðum Optise saman. Við ætlum að massa þetta saman,“ segir hann.

Á ráðstefnunni verði þeir með bás og fái að kynna Optise fyrir fjárfestum, mögulegum viðskiptavinum og fjölmiðlum.

Teymið er tilbúið í slaginn. Aðsend

Fyrirtæki sem selja öðrum fyrirtækjum

Optise er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar vefsíðulausn fyrir B2B fyrirtæki.

„Það eru fyrirtæki sem selja öðrum fyrirtækjum. Í dag er rekstur þessara vefsíðna í klessu. Fyrirtæki reiða sig á auglýsingastofur, forritara og fjölda tóla sem tala ekki saman, og flestar vefsíður eru byggðar einu sinni og svo látnar eiga sig,“ segir Ómar.

Hann segir kerfið það fyrsta sinnar tegundar í heiminum og sé í raun vefsíðukerfi sem bætir sig sjálft.

„Kerfið notar gögn og gervigreind til að vita nákvæmlega hvað vefsíðan þarf, stingur upp á úrbótum og getur framkvæmt þær allar fyrir fyrirtækið, sem hefur alltaf lokaorðið. Optise sér í raun um allt frá hönnun, textasmíði, nýjar síður og að allt sé rétt og uppfært,“ segir hann og heldur áfram:

„Þetta sparar fyrirtækjum gríðarlegan tíma og kostnað og skilar margfalt betri árangri. Við sjáum fyrir okkur að innan skamms muni kerfið geta séð alfarið um vefsíðuna fyrir fyrirtæki,“ segir hann en meðal fyrirtækja sem Optise þjónustar eru Kaldvík, Syndis, Klöppum, Ankeri, Treble, Kerecis og ORF Genetics. 

Mikill fjöldi kom saman í Grósku í vikunni á kynningu Optise um þátttöku þeirra í keppninni. Aðsend

Hann segir tilganginn að vefsíðan finnist á öllum leitarvélum og gervigreindarvélum, eins og Google og ChatGPT, og að hún skili fleiri fyrirspurnum, fleiri tækifærum og fleiri viðskiptavinum.

Ómar segir gervigreindina breyta því daglega hvernig fólk nálgast upplýsingar.

„Áður flettum við upp í símaskránni, á Wikipedia og svo á Google. Nú fara bæði almenningur og fyrirtæki beint í gervigreind á borð við spyrja spurninga og vilja fá svarið strax. Við trúum því að Google, samfélagsmiðlar og aðrir miðlar muni skipta sífellt minna máli í því hvernig fólk finnur upplýsingar,“ segir hann og að þetta sé stærsta breytingin frá því að Internetið kom til sögunnar.

Hann segir gervigreind að miklu leyti ákveða hvort fólk finni fyrirtækið þitt og að vegna þess að gervigreindin byggi sitt svar á upplýsingum af vefsíðum fyrirtækja hafi vefsíðan í raun aldrei verið mikilvægar.

Optise-teymið. Aðsend

Gervigreindin og vefsíðan

Ómar segir nokkuð langa vegferð að keppninni.

„Við sóttum um eitt gott sumarkvöld í júlí. Við vorum ansi brött. Skömmu áður höfðum við verið valin eitt mest spennandi tæknifyrirtæki Evrópu á Techarena, stærstu tækniráðstefnu Norðurlanda þar sem við komumst í fimm liða úrslit, fyrst íslenskra fyrirtækja, og ég kynnti Optise fyrir framan sjö þúsund manns. Umsóknin var langítarlegasta umsókn sem ég hef nokkurn tímann fyllt út. Þar voru fjölmargar spurningar um fyrirtækið, teymið og vöruna og það tók heljarinnar tíma að fylla hana út. Við þurftum líka að senda inn tvö myndbönd. Annað var eins mínútu kynning á fyrirtækinu þar sem ég talaði beint í myndavélina. Hitt var tveggja mínútna myndband sem sýnir hvernig hugbúnaðurinn virkar,“ segir hann.

Það hafi svo verið í september sem hann fékk loks símtal.

„Seint eitt kvöldið í byrjun september hringdi maður frá TechCrunch í Bandaríkjunum. Ég sat þá með Vigni, tæknistjóranum okkar, á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn, rétt áður en við fórum um borð í vél heim. Maðurinn vildi ganga úr skugga um að við værum með allt á hreinu og tilkynnti mér síðan að við hefðum verið valin úr þúsundum umsókna. Við Vignir töluðum ekki um annað alla leiðina heim.“

Teymið er tilbúið í slaginn. Aðsend

Þátttaka sem geti skipt sköpum

Hann segir þetta stærsta mögulega svið í heimi fyrir sprotafyrirtæki eins og hans.

„Bandaríkin eru stærsti markaður heims fyrir hugbúnað fyrir fyrirtæki og á Disrupt koma allir saman sem skipta máli. Stærstu fjárfestar Kísildals, leiðandi tæknifyrirtæki og fjölmiðlar alls staðar að úr heiminum. Á þremur dögum hittum við fleiri fjárfesta, viðskiptavini og blaðamenn en við gætum annars hitt á heilu ári. Fyrir fyrirtæki eins og Optise getur svona vettvangur verið stökkpallurinn sem breytir öllu.“

Hann segir þá stórhuga og þessi þátttaka geti skipt sköpum.

„Við erum að byggja upp nýjan flokk hugbúnaðar og ætlum okkur að verða leiðandi á heimsvísu. Til þess þurfum við að keppa á stærsta sviðinu. Svo langaði mig líka að sýna að íslenskt tæknifyrirtæki getur keppt við þau bestu í heiminum.“

Hvaða þýðingu hefði það persónulega og fyrir fyrirtækið ef þú myndir vinna?

„Sigur yrði gríðarlegur áfangi, bæði fyrir mig persónulega og fyrir Optise. Sigurvegarinn hlýtur peningaverðlaun en það sem skiptir mestu máli er athyglin. Fyrirtækið sem vinnur fær gríðarlegan áhuga frá fjárfestum og viðskiptalífinu og vöxturinn getur orðið ævintýralegur.“


Tengdar fréttir

Þessi eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna

Sjötíu og níu veflausnir eru tilnefndar til Íslensku vefverðlaunanna í ár en aðeins sextán þeirra hreppa verðlaun. Verðlaunin fara fram í tuttugasta og fimmta sinn í Hörpu þann 26. mars næstkomandi.

Hljóðlát enda­lok ís­lensku vef­um­sjónar­kerfanna

Í aldarfjórðung hafa íslenskir vefir að stórum hluta byggt á kerfum sem voru smíðuð hér heima. LiSA hjá Advania frá 1997, Eplica hjá Hugsmiðjunni frá 2001 og Moya hjá Stefnu frá 2003, auk fleiri kerfa, þjónuðu um árabil hundruðum fyrirtækja og stofnana.

Íslenskir vefir á faraldsfæti

Í fyrri grein fjallaði ég um hljóðlát endalok séríslensku vefumsjónarkerfanna og lofaði að kafa næst í gögnin. Hér koma þau. Ég studdist við tvær ólíkar mælingar: BuiltWith, sem greinir hvaða tækni keyrir vefsíður í hverju landi, og Semrush, sem mælir hvert leitaráhuginn stefnir, bæði hér heima og á heimsvísu. Fyrri mælingin segir okkur hvar markaðurinn er, sú síðari hvert hann er að fara. Saman teikna þær mynd sem kom mér á óvart á nokkrum stöðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×