Innlent

Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss

Eiður Þór Árnason skrifar
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar sinna verkefninu.
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar sinna verkefninu. Vísir/vilhelm

Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Kristinn Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, segir slysið alvarlegt. Hann vildi ekki tjá sig efnislega um það að svo stöddu.

RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins og segir Kristinn að von sé á fréttatilkynningu frá lögregluembættinu.

Landsbjörg fékk boð um slysið klukkan 11:42 og skömmu síðar var búið að kalla út þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa hennar.

Jökuldal er að finna vestur af Egilsstöðum og má þar meðal annars finna Stuðlagil og fossinn Rjúkandi en Jökulsá á Dal liggur í gegnum dalinn.



Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×