Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Stefán Árni Pálsson skrifar 5. október 2026 12:17 Kristinn er einn af okkar bestu dómurum. vísir/sigurjón Körfuboltadómarinn Kristinn Óskarsson er byrjaður að dæma sitt fertugasta tímabil í efstu deild. Hann hóf störf í efstu deild kvenna árið 1987 og þetta tímabil leggst vel í einn af okkar bestu dómurum. „
Auðvitað hefur leikurinn bara þróast og reglurnar eru mikið breyttar og líka hvernig leikurinn er leikinn,“ segir Kristinn sem fer ítarlega yfir áherslubreytingar og reglubreytingar komandi tímabils í upphitunarþætti Körfuboltakvölds á Sýn Sport Ísland klukkan átta í kvöld. Klippa: Tíu árum seinna fær maður faðmlag „Það eru miklu meiri snertingar í boltanum í dag og miklu meiri íþróttamennska. Liðin eru orðin mun taktískari og alvarleikinn í dag er á efsta stigi. Það eru fleiri útlendingar og mikil atvinnumennska í gangi þannig að þetta er bara eins og að bera saman epli og appelsínur.“ Það er hans tilfinning að núna sé meira undir í hverjum leik. Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friðriksson og Dominik Zielinski í leik fyrir nokkrum árum. „Tilfinningar hafa alltaf verið í spilinu og í gamla daga þegar bara Keflavík og Njarðvík spiluðu þá var kjaftfullt á Sunnubrautinni þannig að það hefur alveg áður verið. En gæði leiksins eru bara miklu meiri og það er einhvern veginn meiri alvarleiki og kannski bara meiri hagsmunir.“ Stórkostlegir leikmenn En hvernig hefur Kristinn náð að halda sér svona lengi í faginu? „Það eru nokkrir þættir. Í fyrsta lagi er nú bara gott að finna sér starf eða áhugamál þar sem maður finnur að maður hefur eitthvað fram til málanna að leggja og mér finnst ég hafa náð ágætistökum á þessu starfi. Svo er það að fá að vera hluti af þessum dýnamíska leik og vera bara að fá að vera inni á vellinum með þessum stórkostlegu leikmönnum bæði kvennamegin og karlamegin,“ segir Kristinn og heldur áfram. „Svo kannski það sem skiptir mestu máli er hvað maður fær að tengjast mikið af fólki og kynnast mikið af fólki, bæði dómurunum og svo auðvitað líka leikmönnum, þjálfurum, stuðningsmönnum og stjórnarmönnum sem verða vinir manns. Þó að einhverjir upplifi að þetta sé kannski erfitt og kannski einhverjir hagsmunaárekstrar að einhverju leyti, en bara tíu árum seinna þegar maður hittir þetta fólk á bensínstöð á Blönduósi þá fær maður faðmlag.“
Körfubolti Körfuboltakvöld Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Sjá meira