„Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. október 2026 07:03 Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan rapparinn GKR gaf út sína fyrstu breiðskífu, GKR. Nú tíu árum síðar, þar af fimm í Noregi, heldur hann afmælistónleika í Iðnó. Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, er snúinn aftur til landsins eftir fimm ár í Noregi. Blankheit, iðandi íslensk tónlistarsena og frábær vinna með góðum vini drógu Gauk aftur til landsins og heldur hann tíu ára afmælistónleika plötunnar GKR í Iðnó þann 10. október næstkomandi. Sjálfur á hann von á því að margir séu búnir að gleyma honum en lofar trylltum tónleikum.
GKR kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2015 með slagarann „Morgunmat“ og gaf ári síðar út plötuna GKR í formi morgunkornspakka í Kjötborg. Hann flutti árið 2021 til Björgvinjar í Noregi eftir að hafa upplifað mikið tilgangsleysi á Íslandi. Þú ert að halda stóra tónleika, hvað kemur til? „Ég gaf út plötuna GKR árið 2016 og er að fagna henni. Gaf hana út á USB í svona morgunkornspakka og seldi í Kjötborg. Núna er einmitt búið að loka Kjötborg þannig það er smá nostalgía þar. Svo er ég fluttur aftur til Íslands þannig þetta eru líka heimkomutónleikar,“ segir Gaukur. Þú ert búinn að búa erlendis í fimm ár og ekki verið mjög sýnilegur. Heldurðu að fólk sé ekkert búið að gleyma þér? „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér og læt annað frekar koma mér á óvart. En ég finn samt líka út frá miðasölu og peppi að það er alveg mikil stemming. En ég fer mjög auðmjúkur inn í þetta,“ segir hann. Kominn aftur eftir „herbúðir“ í útlöndum Afmælistónleikarnir verða í Iðnó næstkomandi laugardag. Tónlistarmennirnir tatjana og ungurorri munu hita upp fyrir raparann og fleiri góðir gestir svo líta við. Gaukur lofar trylltri skemmtun og segist vera í góðri æfingu. Hverju eiga gestir von á? „Á tímum sem þessum þar sem gervigreindin og internetið ræður ríkjum þá eru stundir sem þessar, þar sem fólk kemur saman á tónleikum, svo dýrmætar. Mun dýrmætari finnst mér en nokkru sinni áður, viðburðir þar sem maður getur gleymt stað og stund og notið augnabliksins,“ segir Gaukur. Ungurorri, Tatjana Dís og Gaukur á góðri stundu. „Ég er að fara að taka lög sem ég hef ekki tekið í mörg ár. En þetta er líka áminning um það hvað það getur verið ógeðslega gaman á tónleikum,“ bætir hann við. „Ég er búinn að vera spila núna í fimm ár fyrir fólk sem skilur ekki orð af því sem ég segi þannig ég er kominn í góða æfingu við að koma fram. Mér líður eins og ég hafi verið sendur í herbúðir til útlanda og er kominn aftur sterkari fyrir vikið.“ „Ég var orðinn alltof blankur“ Hvað kemur til að þú ert fluttur aftur til Íslands? „Ég var orðinn alltof blankur. En það eru í raun tveir faktorar. Ég var búinn að vera að harka í tónlistarsenunni í Noregi sem gekk vel en ég náði ekki nógu góðri fótfestu í bókunum til að lifa á því. Síðan var ég alltaf að vinna í einhverjum aukavinnum til hliðar og undir lokin var ég orðinn hættulega spenntur fyrir þeim,“ segir Gaukur. „Hérna heima er ég með æðislega vinnu með vini mínum sem er með einhverfu. Ég er stuðningur fyrir hann en hann er í raun stuðningur fyrir mig. Það er æðislegt starf og mér þykir mjög vænt um hann sem er stór hluti af ástæðunni fyrir heimkomunni.“ GKR með íslenska fánann á sviði fyrir framan æsta áhorfendur. „Mig langaði að prófa hvernig er að vera aftur á Klakanum. Mér finnst tónlistarsenan á Íslandi líka vera orðinn spennandi á ný. Þegar ég fór út leið mér eins og það væri lítið spennandi í gangi en núna er öldin önnur,“ bætir hann við. Hvað hefur breyst á síðustu tíu árum? „Það hefur svo ótrúlega mikið breyst að ég veit ekki einu sinni hvar maður á að byrja. Ég hef breyst, tónlistin hefur breyst og líka allt í kringum mann,“ segir Gaukur. Gaukur með Kristjáni Aðalbirni í Kjötborg en þeir bræður seldu plötuna í formi morgunkornspakka. „Það er eiginlega betra að nefna það sem hefur ekki breyst. Ég er enn að vinna með Marteini Bngrboy og Ými sem hannaði Morgunkornspakkann og fleira fyrir mig. Marteinn er í dag þekktastur fyrir að hafa pródúserað fyrir Birni en við Marteinn stigum okkar fyrstu skref saman og hann verður plötusnúður á tónleikunum,“ segir han. „Það er of mikið sem hefur breyst til að ég geti sett fingur á það. En þannig á það líka að vera.“ Hægt er að kaupa miða á tónleikana á Tix en fyrir utan þá er Gaukur með ýmislegt á prjónunum, frekari tónlistarútgáfu og „algjöra snilld“ sem hann vill ekki tjá sig strax um eða lofa upp í ermina með.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Tímamót Reykjavík Tengdar fréttir GKR gefur út nýja plötu: „Ég er ekki eins og ég var þegar ég var yngri“ Rapparinn GKR gaf út sína fyrstu plötu í sex ár á föstudaginn í síðustu viku. Hann vill að fólk túlki á eigin hátt um hvað platan er og það hafa tekið langan tíma að byggja upp sjálfsöryggið og viljann til þess að koma sér aftur á sjónarsviðið. 28. febrúar 2024 20:01 GKR boðar endurkomu í öllum skilningi þess orðs Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, hyggst snúa aftur til landsins um helgina og troða upp á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í Kolaportinu næsta föstudagskvöld. Hann hyggst spila nýtt efni, lög af nýrri plötu sem er væntanleg snemma á nýju ári. 2. nóvember 2023 13:00 Meiri athygli á Tinder eftir Morgunmat Tónlistarmaðurinn GKR verður til umfjöllunar í næsta þætti af Rapp í Reykjavík en hann sló rækilega í gegn með lagi sínu Morgunmatur. 11. maí 2016 10:30 Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Funheit í fimm ára afmæli Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Lífið samstarf Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fleiri fréttir „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira
GKR gefur út nýja plötu: „Ég er ekki eins og ég var þegar ég var yngri“ Rapparinn GKR gaf út sína fyrstu plötu í sex ár á föstudaginn í síðustu viku. Hann vill að fólk túlki á eigin hátt um hvað platan er og það hafa tekið langan tíma að byggja upp sjálfsöryggið og viljann til þess að koma sér aftur á sjónarsviðið. 28. febrúar 2024 20:01
GKR boðar endurkomu í öllum skilningi þess orðs Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, hyggst snúa aftur til landsins um helgina og troða upp á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í Kolaportinu næsta föstudagskvöld. Hann hyggst spila nýtt efni, lög af nýrri plötu sem er væntanleg snemma á nýju ári. 2. nóvember 2023 13:00
Meiri athygli á Tinder eftir Morgunmat Tónlistarmaðurinn GKR verður til umfjöllunar í næsta þætti af Rapp í Reykjavík en hann sló rækilega í gegn með lagi sínu Morgunmatur. 11. maí 2016 10:30