Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Lovísa Arnardóttir skrifar 5. október 2026 14:59 Friðarsúlan er tendruð á föstudag. Vísir/Vilhelm Á föstudag verður kveikt á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn. Af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta og hátíðlega dagskrá með leiðsögnum, listasmiðju, tónlistarflutningi og ávarpi borgarstjórans í Reykjavík. Ávallt er kveikt á súlunni þann 9. október sem er afmælisdagur John Lennon.
Í tilkynningu um tendrun súlunnar frá Listasafni Reykjavíkur kemur fram að dagskrá hefjist í Viðey síðdegis og standi fram að tendruninni klukkan 20.00. Í boði verða leiðsagnir á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Yoko Ono og Richard Serra í Viðey ásamt sögugöngum á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur. Gestir geta líka tekið þátt í listasmiðju í Nausti. Við Friðarsúluna sjálfa hefst hátíðardagskrá klukkan 19.45 með tónlistarflutningi Árnýjar Margrétar. Að því loknu flytur Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur ávarp áður en Friðarsúlan verður tendruð við lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono klukkan 20.00. Ferðir í boði Yoko Ono Í tilkynningu kemur jafnframt fram að ferðir til Viðeyjar séu í boði höfundar listaverksins, Yoko Ono, og hefjist frá Skarfabakka klukkan 17:30. Einnig verða í boði fríar strætóferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur að Skarfabakka. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir fram í ferjuferðirnar. Friðarsúlan „Imagine Peace Tower“ er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007. Yoko Ono skapaði Friðarsúluna til að halda á lofti þeim friðarboðskap sem hún og eiginmaður hennar John Lennon töluðu fyrir og tileinkaði honum verkið sem logar frá fæðingardegi hans 9. október til áramóta. Verkið er í formi „óskabrunns“ þar sem orðin „Hugsa sér frið“ eru rist á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljósasúla sem samanstendur af fimmtán geislum sem sameinast í eitt sterkt ljós sem teygir sig til himins. Nánar á vef Listasafns Reykjavíkur.
Reykjavík Viðey Friðarsúlan í Viðey Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Fleiri fréttir „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Sjá meira