Ólíklegt að pestin berist til Íslands Agnar Már Másson skrifar 6. október 2026 20:55 Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir var í viðtali á Bylgjunni um málið. Vísir/Arnar Sóttvarnalæknir telur litlar líkur á því að lungnapest sem greindist í rannsóknarstofu í Rússlandi berist til Íslands enda smitist lungnapest ekki eins hratt og til dæmis inflúensa þó hún geti verið banvæn.
Tugir manna eru sagðir hafa verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu lést tveimur dögum eftir að hafa verið lagður inn á spítala. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar greina frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni sem er sögð hafa það helsta markmið að rannsaka skæða faraldra, það er að segja plágur. „Það sem við vitum er það sem hefur verið í fréttum; það hefur ekki verið mikið staðfest um þetta atvik,“ segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag. Hún útskýrir að svo virðist sem um lungnapest sé að ræða, þótt það hafi ekki verið staðfest heldur. Sjúkdómurinn hafi einnig verið kallaður lungnabólga af óþekktri orsök. Hvað hugsarðu þegar þú sérð svona fréttir? spyr þáttarstjórnandi. „Eins og sumir þá hugsar maður auðvitað til baka til Covid. Þegar það er verið að tala um óþekkta lungnasýkingu og að einhver hafi látist þá finnst manni að það þurfi að athuga það betur. Það er kannski það sem er óþægilegt við þetta,“ segir Guðrún. „En ég hef ekki áhyggjur af þessari sýkingu í sjálfu sér og að hún dreifist eitthvað út. Að hún komi hingað eru mjög litlar eða jafnvel hverfandi líkur.“ Spurð hvers vegna hún telji litlar líkur á að smit berist til Íslands svarar hún að lungnapest smitist yfirleitt aðeins með dropasmiti. „Þetta er ekki smitandi eins og inflúensa eða hvað þá eins og mislingar. Það eru til sýklalyf, þetta er baktería, þannig að ef fólk greinist fljótt þá er hægt að beita þeim. En því miður er há dánartíðni og fólk veikist frekar fljótt. Þetta er ekki þessi dæmigerði sjúkdómur sem breiðist hratt út, þó að hann sé vissulega mjög smitandi milli þeirra sem eru í nánd og þar sem viðkomandi er.“ Guðrún setur þann fyrirvara að margt sé enn óstaðfest. „Við fáum kannski ekki miklar upplýsingar frá Rússlandi og það sem við fáum þaðan virkar ekki eins áreiðanlegt miðað við önnur lönd,“ segir hún. Margar sögusagnir fari á kreik. Þáttarstjórnandi tekur fram að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin meti áhætturnar á svæðinu miðlungslitlar. „Ég er kannski ekki með sömu upplýsingar og þeir, en ef þetta er eitt tilfelli af þessum sjúkdómi og það eru engin önnur tilfelli, þótt það séu ekki fleiri upplýsingar en þetta, þá er áhættan ekki endilega meiri. Það greinast tilfelli af þessum sjúkdómi um heiminn, þetta er sjúkdómur sem er til. Hann greindist síðast í Bandaríkjunum í fyrra.“ Sjúkdómurinn hafi þó ekki greinst í Evrópu lengi og sé ekki í nagdýrum í Evrópu. „Það hefur breyst. Þeir [WHO] byggja þetta væntanlega á því að það er bara þetta eina tilfelli og ekki meira komið í ljós en þetta en þá er hættan á því að þetta dreifist eitthvað út líklegast lítil.“ Annar þáttastjórnenda veltir því þá fyrir sér hvort um efnavopn kynni að vera að ræða. „Mér skilst að það séu rannsóknarstofur sem eru að rannsaka þennan sjúkdóm; hvað þau eru nákvæmlega að gera í einhverjum hernaði það veit ég ekki frekar en aðrir, held ég,“ segir hún. Hún segir að lokum að embætti sóttvarnalæknis muni halda áfram að fylgjast með málinu og að því berist reglulega upplýsingar um málið frá evrópskum heilbrigðisyfirvöldum.
Rússland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilsa Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira