Körfubolti

Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“

Sindri Sverrisson skrifar
Ólafur Ólafsson tók við Íslandsmeistarabikarnum á Sauðárkróki í vor en sagan mun ekki endurtaka sig á þessari leiktíð, að mati sérfræðinganna.
Ólafur Ólafsson tók við Íslandsmeistarabikarnum á Sauðárkróki í vor en sagan mun ekki endurtaka sig á þessari leiktíð, að mati sérfræðinganna. Siggi Photography

Þrátt fyrir að Jeremy Pargo hafi ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum áfram, eftir eina „ótrúlegustu frammistöðu sem sést hefur á íþróttavelli á Íslandi“, er Íslandsmeisturunum aðeins spáð 5. sæti í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds. Keflavík, Valur og Njarðvík verða einnig í neðri hluta úrslitakeppnissætanna samkvæmt sérfræðingunum.

Grindavík heldur ekki bara Pargo heldur líka DeAndre Kane og flestum af þeim sem lönduðu titlinum í vor, fyrir utan Jordan Semple sem farinn er til Álftaness. Það mun þó duga þeim skammt í vetur telja sérfræðingarnir sem fagna því þó að sjá hinn fertuga Pargo aftur. „Ég bara skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur,“ sagði Benedikt Guðmundsson.

Hitað var upp fyrir deildina með veglegum hætti á Sýn Sport Ísland á mánudagskvöld þar sem Stefán Árni Pálsson fékk þá Benedikt og Hlyn Bæringsson líka til að spá fyrir um lokastöðu liðanna. Þeir settu Sindra, Hött, ÍR og Ármann í neðstu sætin.

Þeir spáðu því hins vegar að Njarðvík rétt kæmist inn í úrslitakeppnina í 8. sæti og að Valur, Keflavík og Grindavík yrðu þar fyrir ofan. Hér að neðan má sjá vangaveltur sérfræðinganna um þessi fjögur lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×