Innlent

Kjafts­högg, blys og hrákur á VÍ - MR

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þessa dagana fer fram VÍ - MR vikan sem er haldin á hverju ári.
Þessa dagana fer fram VÍ - MR vikan sem er haldin á hverju ári. Vísir

Einn fékk flösku í höfuðið í kappleik á milli nemenda Verzlunarskóla Íslands og Menntaskólans í Reykjavík. Mikil ölvun og ólæti voru á viðburðinum.

Hin árlega VÍ - MR vika fer fram um þessar mundir. Á viðburði í gærkvöldi þurfti á einum tímapunkti að kalla út átta lögreglumenn á staðinn vegna óláta meðal nemendanna.

Blysum var kastað sem lentu svo í nærstöddum, einhverjir fengu kjaftshögg og var skyrpt á aðra. Þeir sem sóttu leikana voru margir ölvaðir en enginn var vistaður í fangageymslu vegna þessa. Ekki lágu fyrir formlegar kærur þegar dagbók lögreglu var send út klukkan fimm í morgun.

Lögreglan hafði einnig í öðru að snúast. Einn var handtekinn vegna rannsóknar á eignaspjöllum, sölu fíkniefna, vopnalagabroti og peningaþvætti. Þá barst tilkynning um eld í sameign fjölbýlishúss sem kviknaði út frá hlaupahjóli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×