Fótbolti

Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ég á það, ég má það. Infantino fer ekki neitt.
Ég á það, ég má það. Infantino fer ekki neitt. Getty

Gianni Infantino mun verða endurkjörinn sem forseti FIFA á aðalfundi alþjóðasambandsins í mars næst komandi. Í sumar voru allir mættir til að fella kónginn en honum verður ekki steypt af stóli svo glatt.

Svisslendingurinn lenti í brekku í sumar vegna hugmynda sem gerði allan fótboltaheiminn æfan um stund, en nú hefur forysta fótboltaheimsins bakkað og háttsettir menn vilja ekki vera útundan í peningaveldi FIFA á síðasta kjörtímabili umdeilds forseta.

Fótboltaheimurinn reis upp gegn einvaldinum Infantino sem hafði farið bakvið alla aðra forystumenn innan hreyfingarinnar, þar á meðal aðra hæstráðendur hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu, með það fyrir augum að einkavæða hluta FIFA.

Einkafjárfestar, þar á meðal bróðir tengdasonar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, áttu að geta keypt hlut í sambandinu og þénað á því gegnum FIFA Forward Enterprise. Fé sem rennur ýmist í digra varasjóði FIFA eða til knattspyrnusambandanna sem mynda sambandið hefði farið til áhættufjárfesta í Bandaríkjunum.

Gekk loksins of langt

Við þetta var ekki unað. Infantino hafði loks farið yfir strikið.

Hann hafði þó ekki gert það þegar hann eyddi fé FIFA ólöglega í föt, flug og fleira til fyrir sjálfan sig þegar hann hafði aðeins verið í starfinu í örfáa mánuði.

Skömmu eftir það kom nafn hans upp í Panama-skjölunum árið 2016 vegna óeðlilegra samninga í störfum fyrir UEFA. Það dugði þó ekki til að fara yfir strikið og var ekki einu sinni rannsakað.

Hann gekk heldur ekki of langt þegar hann var perluvinur Vladimirs Pútín í kringum HM 2018.

Það dugði ekki að styðja Katara fram í rauðan dauðann meðan þúsundir verkafólks létu lífið við að byggja upp dýrasta, ósjálfbærasta og kolefnisþyngsta heimsmeistaramót sögunnar árið 2022.

Hann fór ekki yfir strikið þegar hann sótti um hæli í Katar á meðan svissnesk lögregluyfirvöld rannsökuðu meinta spillingu hans, og ekki þegar hann gerði tilraunir til að spilla þeirri rannsókn sem leiddi til afsagnar ríkissaksóknarans Michaels Lauber.

Ekki heldur þegar hann skiptist á greiðum við Sáda, sem styrktu FIFA í gegnum sjónvarpssamninga fyrir HM félagsliða og í gegnum olíufélagið Aramco, gegn því að fá að halda HM 2034 án útboðs og kosninga.

Að koma á koppinn sérstökum Friðarverðlaunum FIFA, án samráðs við stjórn sambandsins og aðildarsamböndin, og afhenda þau síðan Donald Trump Bandaríkjaforseta var ekki of langt gengið og ekki að opna nýjar skrifstofur FIFA í Trump-turninum í New York heldur.

Einhverjir létu í sér heyra þegar Donald Trump hringdi í hinn forsetann og fékk leikbanni leikmanns Bandaríkjanna aflétt með fordæmalausum hætti á miðju heimsmeistaramóti. En Infantino hélt þó velli.

Svo kom að því. Þegar Infantino ætlaði að grafa undan grundvallargildum stofnunarinnar – ef hann var ekki löngu búinn að því fyrir – að fólk innan fótboltans sagði stopp.

Veik vonarglæta birtist þeim sem höfðu séð meintan frelsara sem átti að reisa álit umheimsins á FIFA eftir skandal ársins 2015 draga það jafn hratt aftur niður í svaðið.

Loks væri kominn tími breytinga.

Allir mættir til að fella kónginn

Álfusambönd Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku lýstu öll yfir vantrausti á Infantino; hann þyrfti að segja af sér. Utanaðkomandi aðstoð þyrfti til að taka sambandið í gegn þar sem tilraunin með svissneska eiginhagsmunasegginn við stjórnvölin til breytinga hefði bersýnilega misheppnast hrapallega.

Norðmenn skiluðu í vikunni inn formlegri kvörtun til FIFA og óskuðu eftir rannsókn eftirlitsnefndar sambandsins og siðanefndar þess á nýlegustu málunum þremur; friðarverðlaununum, leikbanninu og einkavæðingunni.

Eftir misheppnaða herferð Infantino til bættri og siðaðri stjórnarhátta eru þær nefndir hins vegar álíka bitlausar og verkfall hjá stöðumælavörðum.

Til marks um það má benda á að nýjasti friðarverðlaunahafi Nóbels, mannréttindalögfræðingurinn Navi Pillay (sem útnefnd var í gær), sat í umbótanefnd FIFA en neyddist til að segja af sér árið 2017 vegna stanslausra afskipta Infantino af nefnd sem átti á yfirborðinu að heita óháð.

Líkurnar á því að eitthvað komi út úr kvörtun Norðmanna eru álíka háar og að Infantino hætti við framboð á morgun.

Átti varasjóðinn inni

Infantino var hins vegar í ham. Kosningaham. Hann lofaði bót og betrun. Sagðist opinn fyrir breytingum á stjórnarháttum sambandsins en hefur ekki trú á því að neinn annar en hann sjálfur sé til þess fallinn að leiða breytingarnar, ef þær verða þá á annað borð einhverjar.

Svo lofaði hann peningum. Eftir gegndarlausa söfnun FIFA í geigvænlega stóra varasjóði sambandsins (sem tvöfölduðust úr 2,7 milljörðum í sex milljarða dala eftir HM í sumar) í forsetatíð hans sé nú loks komið að því að skila eigi einhverju af því fé til landssambandanna.

Allt í einu. Rétt fyrir kosningar.

UEFA stendur fast á sínu og kallar áfram eftir allsherjarbreytingum. Illa hefur hins vegar gengið að finna mann sem gæti staðið uppi í hárinu á Infantino í forsetakjöri og átt raunverulega möguleika á kjöri.

Keppir ekki við kónginn

Líkt og forverar Infantino, þeir Joao Havelange og Sepp Blatter, þá þekkir forsetinn hvernig á að vinna kosningar innan greiðaskiptahagkerfis þessarar alþjóðastofnunar. Hvert ríki hefur eitt atkvæði og frambjóðandi kemst langt á því að hafa stóra hluta Afríku, Asíu og Karíbahafsins á sínu bandi.

Það þarf bara að halda réttu mönnunum góðum.

Ríki frá þeim álfum eiga til að líta ofurafl Evrópu og UEFA hornauga. Þau hræðast tilætlunarsemi gamalla nýlenduríkja um breytingar sem gætu verið Evrópu í hag á kostnað annarra.

Evrópa býr yfir smáum hluta heildaratkvæða en mokar sjálf inn peningum með stærstu og vinsælustu keppnum heims.

Af pólítískum ástæðum á annar Evrópumaður því lítinn séns gegn Infantino og líklega fáir íhugað framboð aðrir en Ramon Vega sem mun að líkindum fá um 10 prósent atkvæða í mars, í besta falli. Það er, ef hann yfirhöfuð finnur nógu mörg sambönd til að styðja framboðið svo það teljist löglegt.

Naser Al-Khelaifi frá Katar, sem er forseti PSG, ætti mögulega séns vegna tengsla víða um heim, hann er sterkur bæði í Evrópu og Asíu, og var álitinn góður kostur. Hann ætlar ekki fram.

Kanadamaðurinn Victor Montagliani, forseti Norður-Ameríkusambandsins CONCACAF, er annar kostur í stöðuna en eftir fundi Infantinos með Karíbahafsríkjum nýlega varð ljóst að Montagliani fengi ekki einu sinni með meirihluta atkvæða innan eigin álfu. Hann fer ekki í framboð.

Infantino fundaði einnig með fulltrúum Afríkuríkja í vikunni og útlit fyrir að stór hluti álfunnar standi við bakið á honum.

Fresturinn til framboðs rennur út 18. nóvember og hver fer að verða síðastur að taka þátt. Ekkert bendir til þess að kandídat sem á séns stígi fram á næstu 40 dögum.

Allir vilja boð í partýið

Sjeik Salman bin Ibrahim Al Khalifa, varaforseti FIFA sem er jafnframt forseti Knattspyrnusambands Asíu, hefur þá líka bakkað verulega með kröfur sínar um afsögn og utanaðkomandi tiltekt á sambandinu.

Það er til marks um það að kosningabaráttunni sé lokið og nú passa menn upp á verða ekki útundan þegar Infantino hefur sitt fjórða kjörtímabil hjá sambandi sem leyfir forseta aðeins að sitja þrjú (fyrsta kjörtímabilið var ekki alveg heilt vegna afsagnar Blatter á því miðju og því gat Infantino fengið undanþágu til að halda starfinu áfram).

UEFA ítrekaði í vikunni gagnrýni sína í kjölfar yfirlýsingar varaforsetans frá Barein en veitti á sama tíma Aleksander Ceferin, forseta UEFA, álíka undanþágu til að sitja áfram við stjórnvölinn í fjórða kjörtímabilið. Hann varð sjálfkjörinn.

Gagnrýni UEFA fer ekki neitt og Evrópubúarnir öskra út í tómið meðan kóngurinn brosir sínu breiðasta á hásætinu fjögur ár í viðbót og treystir á meðan sambönd sín við missæmilega þjóðarleiðtoga heimsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×