Sport

Dag­skráin í dag: Manchester City heim­sækir Bítlaborgina

Andri Broddason skrifar
Mikil umfjöllun hefur verið um Manchester City í landsleikjaglugganum.
Mikil umfjöllun hefur verið um Manchester City í landsleikjaglugganum. Alex Livesey /Getty Images

Nóg er um að vera á Sportrásum Sýnar þennan sunnudaginn þar sem allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi. Stórleikur í enska boltanum, besta deild karla, Formúla 1, NFL og golf er í boði svo eitthvað sé nefnt.

Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er í dag þegar Liverpool tekur á móti Manchester City. Þetta hafa verið sigursælustu lið ensku úrvalsdeildarinnar síðustu ár og er þetta fyrsti leikur Manchester City síðan staðfest var að félagið braut fjárhagsreglur deildarinnar. Útsending frá leiknum hefst klukkan 15:05 á Sýn Sport. Eftir leikinn tekur svo Sunnudagsmessan við sem fer yfir allt það helsta sem gerðist í enska boltanum um helgina. Sá þáttur byrjar klukkan 17:35.

Áður en stórleikurinn hefst verður leikur Hull og Everton sýndur klukkan 12:40 á Sýn Sport 3 og leikur Crystal Palace og Nottingham Forest verður einnig sýndur klukkan 12:40 á Sýn Sport.

Tveir leikir eru spilaðir í dag í Bestu deild karla þar sem þriðja umferð deildarinnar eftir skiptingu fer fram. Íslandsmeistararnir í Víking taka á móti ÍA klukkan 19:05 á Sýn Sport Ísland 2. Breiðablik tekur á móti Keflavík klukkan 19:00 á Sýn Sport Ísland. Eftir leikina fer Stúkan yfir allt það helsta sem gerðist í umferðinni klukkan 21:15 á Sýn Sport Ísland.

Á Sýn Sport Viaplay heldur dramatíkin áfram í Formúlu 1 þar sem keppni dagsins verður haldin í Singapúr. Sprettkeppni var í gær sem endaði æsispennandi og mun Max Verstappen, líkt og í sprettkeppninni, hefja keppnina á ráspól. Ferrari ökumennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton verða á eftir honum. Útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30.

Eftir Singapúr-kappaksturinn fáum við stórleik í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta á Sýn Sport Viaplay. Leikur Fuchse Berling og Lemgo verður sýndur í beinni útsendingu sem hefst klukkan 15:55.

Nóg er um að vera í NFL-deildinni í Bandaríkjunum þar sem sýndir verða tveir leikir. Klukkan 16:55 hefst leikur Packers og Bears á Sýn Sport 2 og klukkan 20:20 hefst útsending frá leik Seahawks og 49ers einnig á Sýn Sport 2. Fyrir þá sem vilja ekki láta neinn leik fram hjá sér fara verður NFL RedZone á dagskrá klukkan 16:55 á Sýn Sport 3 þar sem fylgst verður með öllum leikjum dagsins.

Lokahringur Opna spænska mótsins á DP World-mótaröðinni í golfi hefst í dag. Mikil spenna verður upp á sigurinn og mun útsending hefjast klukkan 11:00 á Sýn Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×