Enski boltinn

Segir Barcola ekki í vand­ræðum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bradley Barcola hefur ekki staðið undir verðmiðanum hingað til.
Bradley Barcola hefur ekki staðið undir verðmiðanum hingað til. Vísir/Getty

Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, hafnar fullyrðingum þess efnis að Bradley Barcola, sem keyptur var dýrum dómum til félagsins frá PSG í sumar, hafi ekki staðið sig nægilega vel eftir skiptin til Bítlaborgarinnar.

Barcola mun að líkindum vera í byrjunarliði Liverpool er liðið tekur á móti Manchester City í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Honum hefur ekki tekist að slá í gegn í fyrstu leikjum sínum með þeim rauðklæddu.

Hann sætti þá gagnrýni fyrir frammistöðu sína með franska landsliðinu í 4-1 sigri liðsins á Belgum í síðasta leik landsleikjagluggans.

Bæði Cody Gakpo og Alexander Isak, sem hafa verið bestu sóknarleikmenn Liverpool hingað til á leiktíðinni, verða frá góðu gamni í stórleiknum í dag. Barcola þarf því að sýna sínar bestu hliðar.

„Ég held ekki að hann sé í lægð – vandinn við kantmenn eða framherja er að ef þeir skora ekki mark, þá „spiluðu þeir ekki vel“,“ sagði Iraola á blaðamannafundi um Frakkann.

„Við verðum að skoða leikina, við verðum að horfa á þá. Ég sagði það eftir fyrsta leikinn gegn Atletico Madrid, hann klúðraði tveimur eða þremur nokkuð góðum færum. Mér er sama. Í alvöru. Mér er ekki sama, en ég vil að hann sjái að hann er að koma sér í færin,“ segir Iraola og bætir við:

„Með landsliðinu hef ég séð að hann hefur fengið nokkur góð færi til að skora; hann hefur ekki skorað, en ég vil að hann sé þarna.“

Liverpool og Manchester City eigast við klukkan 15:30 í dag. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×