Skoðun

Værum við jafn and­vara­laus ef þorskurinn væri í húfi?

Halla Hrund Logadóttir skrifar

Myndum við sætta okkur við að stjórnvöld drægju nauðsynlegar úrbætur laga á langinn ef heilbrigði og framtíð íslenska þorskstofnsins, sem er grunnur að efnahag okkar, væru í húfi? Að þekktir gallar væru á eftirliti og stjórnsýslu, en málið biði vegna þess að erfitt væri að ná samstöðu? Ég held ekki. Við myndum krefjast skýrra svara, ábyrgðar og aðgerða. Sömu kröfur eigum við að gera þegar villtir laxastofnar og náttúra íslenskra fjarða eiga í hlut.

Þekktir ágallar kalla á umbætur

Í febrúar 2023 setti Ríkisendurskoðun fram 23 ábendingar um úrbætur á stjórnsýslu sjókvíaeldis. Niðurstaðan var alvarleg; stjórnsýsla og eftirlit höfðu ekki haldið í við vöxt greinarinnar. Jafnframt höfðu fleiri opinberar stofnanir sem koma að leyfisveitingaferlinu bent á ágalla í umgjörðinni.

Nú, rúmum þremur árum síðar, þarf að liggja skýrt fyrir hvernig þessum ábendingum hefur verið fylgt eftir. Hvað hefur verið lagað? Hvað stendur enn út af? Hver ber ábyrgð á næstu skrefum og hvenær verður þeim lokið? Almenningur á rétt á heildstæðum svörum. Fyrirtækin, starfsfólk þeirra og samfélögin sem um ræðir eiga það líka skilið.

Traust umgjörð verndar náttúruverðmæti og skapar jafnframt fyrirsjáanleika fyrir atvinnulífið. Skýrar reglur, öflugt eftirlit og markviss viðbrögð við frávikum eru forsenda þess að traust ríki til stjórnsýslu og eftirlits með greininni. Þess vegna er eftirfylgni ábendinganna sameiginlegt hagsmunamál, þótt menn greini á um æskilegt umfang sjókvíaeldis og framtíð þess.

Ágreiningur leysir engan undan ábyrgð

Lagareldisfrumvarpið varð ekki að lögum á síðasta þingi. Í svari atvinnuvegaráðuneytisins í lok september kom fram að það væri ekki á dagskrá yfirstandandi þings vegna forgangsröðunar annarra þingmála og að ákvörðun um endurflutning hefði ekki verið tekin. Ráðherra hafði jafnframt vísað til þess að samstaða hefði ekki náðst innan fiskeldisgreinarinnar um stuðning við frumvarpið.

Ágreiningur um frumvarp getur verið réttmætur og sýnt að vanda þurfi betur til verka. Hann getur kallað á breytingar eða nýja útfærslu fyrir atvinnulíf, skýrari ábyrgð eða sterkari vernd náttúrunnar. En þótt eitt frumvarp nái ekki fram að ganga hverfur ekki skyldan til að bregðast við þekktum göllum. Hér eru langtímahagsmunir náttúru, samfélaga og atvinnulífs undir.

Að bregðast ekki við er að bregðast öllum þessum aðilum og taka um leið óþarfa áhættu. Það er ábyrgðarleysi.

Við erum vön að bregðast við athugasemdum

Stundum er best að setja málið í annað samhengi til að sjá skýrar hvað þurfi að gera.

Ef skipaskoðun gerði 23 athugasemdir við skip fengi það ekki haffærisskírteini fyrr en búið væri að gera úrbætur. Yfirvöld myndu ekki sætta sig við að eigandinn sendi það út á sjó og vonaði það besta, af því að það væri of mikið vesen að bregðast við.

Ef eftirlit með þýðingarmikilli samgönguleið, líkt og brú yfir Þjórsá, leiddi í ljós margs konar galla myndum við ekki líta undan og vona það besta í umferðinni. Við myndum staldra við og bæta úr göllunum með öryggi vegfarenda í huga.

Sama hlýtur að gilda um sjókvíaeldi; við bætum úr göllunum sem viðurkenndur eftirlitsaðili setur fram áður en að lengra er haldið. Það er skylda stjórnmálanna því valdið til laga- og reglugerðabreytinga liggur hvergi annars staðar.

Ábyrgðin að gæta almannaheilla liggur hjá stjórnvöldum

Hagsmunaaðilar eiga að hafa rödd og þekking þeirra skiptir máli. Ábyrgðin á að vega saman ólíka hagsmuni og gæta almannaheilla liggur hins vegar hjá stjórnvöldum. Nauðsynlegar umbætur geta ekki beðið þess að allir verði sammála um hvert einasta atriði. Þá væri ágreiningur orðinn að afsökun fyrir að bregðast ekki við.

Við þurfum að horfa til allra þeirra verðmæta sem eru í húfi; atvinnu og byggðaþróunar, áherslu nærsamfélaga, villtra fiskistofna, heilbrigðra vistkerfa og annarrar nýtingar sem byggist á þeim. Ávinningur og áhætta falla ekki endilega sömu aðilum í skaut. Vönduð auðlindastjórnun krefst þess að þessir hagsmunir séu metnir saman og að langtímasjónarmið ráði för.

Lögum girðingarnar áður en fénu er sleppt

Í sveitinni lærði ég einfalt verkvit: Við lögum girðingarnar áður en fénu er sleppt á túnin. Sú vinna getur verið seinleg og kostað fyrirhöfn, en við vitum hvers vegna hún er nauðsynleg. Sömu hugsun þurfum við við nýtingu náttúruauðlinda. Umgjörðin verður að halda og eftirlitið að geta sinnt hlutverki sínu.

Ég kalla eftir því að ríkisstjórnin geri á þessu þingi skýra grein fyrir því hvernig ábendingum Ríkisendurskoðunar hefur verið fylgt eftir og leggi fram tímasetta áætlun um þær úrbætur sem eftir standa. Þar sem lagabreytinga er þörf verður að leggja þær fyrir Alþingi. Ráðast þarf án tafar í þær úrbætur stjórnsýslu og eftirlit sem ekki krefjast lagabreytinga.

Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum til þess að ljúka þessu verki af ábyrgð og vona að þingheimur sameinist um verkefnið. Erfið mál kalla á þrautseigju, vandaða vinnu og skýrar ákvarðanir. Við gerum kröfur til fyrirtækjanna og starfsfólksins í greininni. Við verðum að gera sömu kröfur til okkar sjálfra.

Vöknum og hefjumst handa. Verkið þolir ekki bið.

Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.




Skoðun

Skoðun

Glassúrfólkið

Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar

Sjá meira


×