Handbolti

Mál á borði lög­reglu eftir leik hjá liði Donna

Aron Guðmundsson skrifar
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, í leik með íslenska landsliðinu
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, í leik með íslenska landsliðinu Vísir/Vilhelm

Öryggisvörður, sem ráðist var á þegar SAH tók á móti Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, liggur enn inni á sjúkrahúsi. Málið er í höndum dönsku lögreglunnar.

Leikur liðanna fór fram um helgina á heimavelli SAH en með liðinu leikur íslenski landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson.

Það var stuðningsmaður Fredericia sem réðst á öryggisverðina og veitti þeim áverka sem voru þess eðlis að flytja þurfti hann á sjúkrahús þar sem hann er enn inniliggjandi.

Málið er komið á borð dönsku lögreglunnar og þá hefur SAH tilkynnt það til aganefndar danska handknattleikssambandsins.

Aðalstuðningsmannahópur Fredericia hefur fordæmt hegðun stuðningsmannsins.

Umræddur maður var að sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir SAH sem öryggisvörður á leiknum og fordæmir félagið hvers kyns ofbeldi. Allir eigi að geta verið öruggir á leikjum félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×