Skoðun

Lyf eru fjár­festing í fólki og fram­tíðinni

Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar

Síðastliðin ár og áratugi hefur orðið bylting í lyfjaþróun sem leitt hefur af sér fjölda nýrra meðferðarúrræða. Líftæknilyf hafa gjörbreytt lífsgæðum fólks með langvinna sjúkdóma sem áður höfðu veruleg áhrif á daglegar athafnir. Rannsóknum á sviði krabbameinslyfja fleygir fram og nýjar einstaklingsmiðaðri og markvissari meðferðir gera sjúklingum kleift að lifa lengur og búa við betri lífsgæði. Bóluefni hafa dregið verulega úr eða nánast útrýmt ýmsum sjúkdómum og eru í dag ein mikilvægasta stoð lýðheilsu.

Eðlilegt er að almenningur velti fyrir sér kostnaði lyfja, enda geta þau, eftir áratugalangt rannsóknar- og þróunarferli, verið kostnaðarsöm.

Fjármunir heilbrigðiskerfisins eru takmarkaðir og lyf eru einn þeirra útgjaldaliða sem stjórnvöld þurfa að forgangsraða. Markmiðið ætti því ekki eingöngu að vera að halda lyfjakostnaði niðri, heldur að tryggja að fjárfesting í lyfjameðferð skili sem mestum heilsufarslegum ávinningi.

Erfið veikindi einstaklings geta haft margvísleg áhrif á aðstandendur. Þessi áhrif lýsa sér meðal annars í röskun á daglegu lífi, svo sem fjarvistum eða brotthvarfi af vinnumarkaði, minni framleiðni og auknum tíma og ferðakostnaði sem fellur til við að sækja heilbrigðisþjónustu. Þyngri tilfelli geta leitt til örorku eða ótímabærra dauðsfalla sem aukið getur enn frekar álag og áhrif á aðstandendur. Þetta kallast óbeinn kostnaður og hann getur orðið margfalt hærri en beinn kostnaður lyfjameðferðar.

Þjóðin er að eldast, langvinnum sjúkdómum fjölgar og þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu fer vaxandi. Á sama tíma skapa fyrrnefndar framfarir í læknavísindum ný tækifæri til að fyrirbyggja sjúkdóma, bæta meðferð og auka lífsgæði. Þessi þróun kallar á langtímahugsun og skýra forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu.

Ný lyf þarf að meta af kostgæfni og tryggja ábyrga nýtingu opinbers fjár. Við mat á kostnaði þarf jafnframt að horfa til þess ávinnings sem árangursrík meðferð getur skilað til lengri tíma. Bætt heilsa og aukin lífsgæði eru verðmæti í sjálfu sér, en ávinningurinn getur einnig falist í aukinni starfsgetu og þátttöku í samfélaginu og minni þörf fyrir heilbrigðisþjónustu síðar meir.

Umræðan um lyfjaútgjöld ætti því ekki eingöngu að snúast um hvað lyf kosta, heldur einnig um hvaða verðmæti þau skapa. Árangursrík lyfjameðferð getur verið fjárfesting í fólki, heilsu þess og þátttöku í samfélaginu.

Heilbrigð þjóð er ein mikilvægasta auðlind samfélagsins. Höfum það að leiðarljósi og fjárfestum í fólki og framtíðinni.

Höfundur er lyfjafræðingur og stjórnarkona í Frumtökum, samtökum framleiðenda Frumlyfja.

Lyf



Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Sjá meira


×