Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2026 23:00 Elísabet Gunnarsdóttir fylgist með leiknum við Pólland í Gdansk í kvöld. Getty/Adam Nurkiewicz Belgískir fjölmiðlar segja ljóst að tíma Elísabetar Gunnarsdóttur með kvennalandslið Belgíu í fótbolta gæti verið lokið eftir tap í vítakeppni gegn Póllandi í kvöld. Lykilleikmenn sýndu henni hins vegar mikinn stuðning.
Nieuwsblad segir að starf Elísabetar hangi á bláþræði og í grein De Standaard er gengið svo langt að segja að belgíska liðið hafi tapað tveimur árum undir stjórn hennar. Elísabet var óvænt ráðin í janúar 2025 þegar Ives Serneels var rekinn en hann hafði þá stýrt liðinu inn á EM í Sviss. Á því móti féll Belgía úr leik í riðlakeppninni. Liðið féll svo úr A-deild Þjóðadeildarinnar og nú er HM-draumurinn úr sögunni eftir tap í vítaspyrnukeppni í Gdansk í kvöld. Sjálf sagði Elísabet eftir leik í kvöld að það væri ekki í sínum höndum hvort hún yrði áfram þjálfari Belgíu. Samningur hennar átti að gilda fram yfir HM næsta sumar en nú er möguleikinn á HM-sæti úr sögunni. „Þetta er auðvitað ekki í mínum höndum. Ég hef klárlega trú á sjálfri mér en þetta er ekki mitt að ákveða,“ sagði Elísabet samkvæmt Sporza. Barcelona-stjarnan Ewa Pajor reyndist Belgum erfið í kvöld og skoraði í venjulegum leiktíma og framlengingu. Hún var þó sú eina í liði Póllands sem nýtti ekki sitt víti í vítaspyrnukeppninni.Getty/Mateusz Slodkowski „Held að við stöndum allar við bakið á henni“ Fyrirliðinn Tessa Wullaert, sem leikið hefur 159 landsleiki, vill að Elísabet haldi áfram og hið sama sagði annar reynslubolti, Janice Cayman. „Ég vona það svo sannarlega. Ég held að við stöndum allar við bakið á henni. Við vinnum og töpum saman. Við lítum klárlega ekki bara til einnar manneskju. Ég vona svo sannarlega að hún haldi áfram með okkur og við með henni,“ sagði Wullaert og Cayman tók í sama streng. Hin 38 ára gamla Janice Cayman sækir að Wiktoria Zieniewicz í Gdansk í kvöld. Cayman vill að Elísabet fái að halda áfram með belgíska landsliðið.Getty/Adam Nurkiewicz „Það býr svo mikið í þessum hópi. Ungu leikmennirnir eiga eftir að springa út og ég vona að það gerist undir stjórn núverandi þjálfara. Þetta starfslið hefur gert afar vel við að þroska þennan hóp,“ sagði Cayman og bætti við: „Það er synd að við skulum ekki hafa náð að uppskera.“
HM 2027 í Brasilíu Fótbolti Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Sjá meira