Lokanir, lægðir og samviskubit Rakel Sveinsdóttir skrifar 16. október 2026 07:03 Áhrifin á okkur á óveðursdögum gætu mögulega verið meiri en okkur oft grunar. Enda hefur vinnusálfræðin rannsakað þessi áhrif um árabil. Fróðleikur og góð ráð fyrir alla fylgja þessum vikulokum. Vísir Ekkert okkar er það bjartsýnt fyrir veturinn að stóra lægðin og óveðrið sem hér geisaði í vikunni sé það fyrsta, eina og síðasta sem fram undan er.
Nei, svo aldeilis má búast við fleiri lægðum, fleiri viðvörunum í vetur. Með tilheyrandi röskun á atvinnulífi, skóla og fleira. Það áhugaverða er að vinnusálfræðin hefur rannsakað töluvert hvað gerist á vinnustöðum þegar allt fer á hliðina í óveðri eins og þessu. Niðurstöðurnar sýna skýrt hvað reynist best – og hvaða gildrur ber að varast. Í góðu ráðum þessi vikulok, ætlum við að rýna í fróðleik og góð ráð fyrir alla tengt óveðrum. 1. Varist stafræna sektarkennd Áður fyrr þýddi ófærð einfaldlega að fólk komst ekki til vinnu; það var ófært og samfélagið tók sér pásu. Með tilkomu fjarvinnu hefur þetta breyst en rannsóknir sýna að starfsfólk upplifir oft mikla sektarkennd og reynir hvað sem það getur að viðhalda „stafrænni viðveru“ á Teams eða Slack, jafnvel þótt aðstæður heima fyrir séu í uppnámi. Gott ráð fyrir stjórnendur: Sendið skýr skilaboð strax um morguninn: „Við vitum að aðstæður eru erfiðar í dag. Setjum brýnustu verkefni í forgang en leyfum öðru að bíða.“ Þetta léttir strax á samviskubiti starfsfólks. 2. Keðjuverkun lokana: Fjarvinna með börn heima er ekki full vinna Þegar skólar og leikskólar loka eða seinka opnun riðlast allt dagskipulag foreldra. Rannsóknir sýna að samhliða umönnun barna og fjarvinnu verður verulegt framleiðnitap auk þess sem álagið eykst gríðarlega. Það er einfaldlega óraunhæft að ætlast til óskertrar einbeitingar við slíkar aðstæður. Gott ráð fyrir starfsfólk: Verið raunsæ og stillið væntingum í hóf. Fellið niður eða frestið hefðbundnum fundum sem krefjast djúprar einbeitingar og einbeitið ykkur frekar að afmörkuðum, smærri verkefnum. 3. Ákvarðanatregða veldur meiri streitu en sjálft óveðrið Rannsóknir á stjórnun í óvissu sýna að það sem veldur fólki mestri streitu er ekki lokunin sjálf, heldur biðin eftir ákvörðun. Þegar tilkynningar um skólahald eða vinnuskyldu berast á síðustu stundu - til dæmis seint að kvöldi eða snemma að morgni - magnast óvissa og pirringur hratt. Gott ráð fyrir stofnanir og stjórnendur: Skýrar reglur og snemmbúnar ákvarðanir skipta öllu. Betra er að taka varúðarákvörðun tímanlega en að halda öllu opnu fram á síðustu stundu. 4. Samkennd og félagsleg seigla vinnustaða Það jákvæða er að þegar ytri aðstæður herja á samfélagið eykst oft samstaða, skilningur og hjálpsemi. Fólk sýnir töfum, tæknilegum hnökrum og fjarveru samstarfsfélaga meira umburðarlyndi en vanalega. Og þetta þekkjum við Íslendingar nú sannarlega! Gott ráð fyrir alla: Nýtið daginn til að sýna liðsauka og sveigjanleika. Einföld skilaboð eins og: „Hvernig gengur hjá þér, þarftu aðstoð við að létta á verkefnum í dag?“ geta skipt sköpum fyrir starfsanda og traust innan teymisins til lengri tíma.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt. 9. október 2026 07:01 Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Á dögunum birtist allt í einu sláandi fyrirsögn á Vísi: Fyrst um að framkvæmdastjóri væri meðal handtekinna í róttækum aðgerðum lögreglu og síðan að sá hinn sami væri framkvæmdastjóri BL. 2. október 2026 07:02 Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00 Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02 Þegar allt er að fara fjandans til… Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið. 11. september 2026 07:02 Mest lesið „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Malasar í samstarf við GreenFish Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Atvinnulíf Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Viðskipti innlent Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Sjá meira
Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt. 9. október 2026 07:01
Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Á dögunum birtist allt í einu sláandi fyrirsögn á Vísi: Fyrst um að framkvæmdastjóri væri meðal handtekinna í róttækum aðgerðum lögreglu og síðan að sá hinn sami væri framkvæmdastjóri BL. 2. október 2026 07:02
Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00
Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02
Þegar allt er að fara fjandans til… Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið. 11. september 2026 07:02