Sport

Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finn­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Blandaða landslið Íslands í hópfimleikum á EM í Finnlandi.
Blandaða landslið Íslands í hópfimleikum á EM í Finnlandi. FSÍ

Eftir góðan æfingadag í Espoo í Finnlandi í dag er allt klárt hjá A-landsliðum Íslands í hópfimleikum fyrir keppni morgundagsins. Spenna og bjartsýni ríkir í hópnum eins og heyra mátti í viðtölum.

Undanúrslitin í fullorðinsflokki eru á morgun og úrslitin svo á laugardaginn.

Blandaða liðið ákvað að gera smávægilegar breytingar á dansinum sínum og æfði sig án sokka í dag sem þótti heppnast vel.

„Podium æfingin gekk vel, við erum búin að ná að prófa áhöldin og gerðum smá breytingar í dansi. Við tókum ákvörðun um að vippa okkur úr sokkunum og þau munu vera á tánum. Það leit bara mjög vel út. Helstu markmiðin okkar í dansi eru að fá öll mómentin gild og ná að skila brosi og góðri orku upp í stúku,“ segir Yrsa Ívarsdóttir, dansþjálfari blandaða liðsins.

Rætt er við Yrsu og Stefán Ísaksson stökkþjálfara sem og fyrirliðana Markús Pálsson og Dagnýju Lind Hreggviðsdóttur í myndbandinu hér að neðan.

Kvennalandsliðið átti sömuleiðis góðan æfingadag og er tilbúið í slaginn.

Kvennalandsliðið er klárt í slaginn í Espoo á Evrópumótinu í hópfimleikum.

„Þær eru mjög yfirvegaðar, fókusa þegar það þarf, hafa gaman þegar það þarf og þetta er bara mjög góð blanda. Planið okkar er bara að komast í gegnum morgundaginn áfallalaust, helst lenda allt á fótunum, fá góða tilfinningu og svo vinnum við út frá því á laugardaginn,“ segir Andrea Sif Pétursdóttir.

Rætt er við þjálfarana Andreu og Kristin Þór Guðlaugsson sem og fyrirliðana Julie Woldseth og Ingunni Ragnarsdóttur í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×