Fótbolti

Fal­legt Evrópukvöld fyrir Ís­lendingana

Sindri Sverrisson skrifar
Viktor Bjarki Daðason var nálægt því að skora í kvöld.
Viktor Bjarki Daðason var nálægt því að skora í kvöld. Getty/Kristian Tuxen Ladegaard

Íslenskir landsliðsmenn höfðu ástæðu til að fagna í kvöld í leikjum með sínum liðum í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta, hvort sem var í Danmörku, Noregi eða Hollandi.

Viktor Bjarki Daðason var í fremstu víglínu hjá FC Kaupmannahöfn og hársbreidd frá því að skora í 3-0 sigri á portúgalska liðinu Braga. Mohamed Elyounoussi skoraði fyrsta markið þegar hann fylgdi á eftir skoti Viktors sem varið var með miklum naumindum. 

Reynsluboltinn Andreas Cornelius kom svo inn á fyrir Viktor og skoraði tvennu á síðasta hálftíma leiksins. Rúnar Alex Rúnarsson sat hins vegar á varamannabekknum.

Í Noregi voru þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann sem vann Lincoln Red Imps 2-1. Kristall Máni Ingason, Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon spiluðu allan leikinn en það var Niklas Castro sem skoraði bæði mörk Brann eftir að gestirnir höfðu komist yfir á 59. mínútu.

Brann hafði misst Neraysho Kasanwirjo af velli með rautt spjald um miðjan fyrri hálfleik en aftur varð jafnt í liðum á 61. mínútu, þegar Gabri Garcia var rekinn af velli, og eftir það komu mörk heimamanna.

Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á sem varamaður á 67. mínútu hjá Twente og er að komast á fulla ferð eftir meiðsli. Liðið vann 1-0 sigur gegn svissnesku meisturunum frá Thun.

Tómas Bent Magnússon var hins vegar í leikbanni og ekki með Hearts sem gerði 1-1 jafntefli við Nordsjælland í Skotlandi.

Á meðal annarra úrslita kvöldsins má nefna að Brighton vann stórsigur gegn Kauno Zalgiris, 4-0, þar sem Georginio Rutter skoraði tvennu en Jack Hinshelwood og Matt O'Riley hin tvö mörkin.


Tengdar fréttir

Mikael meiddur af velli í Belgíu

Landsliðsmaðurinn Mikael Anderson meiddist eftir tuttugu mínútna leik með AGF gegn Gent í Belgíu í kvöld, í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta.

Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum

Orri Steinn Óskarsson fékk aðeins eina og hálfa mínútu til að láta til sín taka með Real Sociedad í Belgíu í kvöld en var samt nálægt því að skora sigurmark þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Union SG í Evrópudeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×