Fótbolti

Synda­af­lausn Infantino: „Páfinn yrði himin­lifandi“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sepp Blatter var ekki lítið umdeildur í starfi forseta en arftakinn Infantino. Hann þrætti fyrir spillingu innan sambandsins árum saman áður en það hrundi eftir rannsókn FBI í Bandaríkjunum.
Sepp Blatter var ekki lítið umdeildur í starfi forseta en arftakinn Infantino. Hann þrætti fyrir spillingu innan sambandsins árum saman áður en það hrundi eftir rannsókn FBI í Bandaríkjunum. Vísir/AFP

Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, hefur iðulega gagnrýnt arftaka sinn Gianni Infantino eftir að sá síðarnefndi tók við störfum af Blatter fyrir rúmum áratug. Hann greip tækifærið í dag eftir kléna afsökunarbeiðni Infantino í gær.

Fyrsti stjórnarfundur FIFA eftir stormasamt sumar var loks haldinn í dag. Þar voru meðal annars til umræðu fordæmalaus undanþága Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna, frá leikbanni á miðju heimsmeistaramóti í sumar, friðarverðlaun FIFA sem Infantino afhenti Donald Trump, og tilraun Infantino til að einkavæða hluta FIFA sem gerði allt vitlaust í fótboltaheiminum.

Debbie Hewitt, formaður enska knattspyrnusambandsins sagði eftir fundinn í gær að Infantino hafi beðist afsökunar að hluta en sú beiðni verið klén. Margar spurningar hafi verið lagðar fyrir Infantino eftir vasklegan framgang hans í sumar en hann svarað engum þeirra af viti, eftir því sem Hewitt sagði bið breska fjölmiðla.

Sepp Blatter sagði af sér með skömm sem forseti FIFA eftir að skandall skók sambandið árið 2015, sem leiddi til kæra á hendur fjölmörgum stjórnendum hjá sambandinu og lífstíðarbönnum frá íþróttinni.

Infantino var ætlað að rétta skipið af og leiða byltingu til bættra stjórnarhátta innan sambandsins. Töluverðar breytingar voru gerðar á blaði, sérstaklega fyrstu árin, en fljótt fór að bera á skrefum aftur á bak.

Stanslaus afskipti Infantino af nýjum eftirlitsnefndum sem áttu að vera óháðar röskuðu starfi þeirra og flestir fulltrúar innan þeirra nefnda sögðu af sér, þar á meðal nýjasti handhafi friðarverðlauna Nóbels, Navi Pillay, sem sagði af sér 2017 vegna afskipta forsetans.

Blatter hefur undanfarinn áratug gripið hvert tækifæri sem gefist hefur þegar spjót hafa staðið að Infantino til að gagnrýna eftirmanninn. Margur myndi segja það grjótkast úr glerhúsi en færsla hans á samfélagsmiðilinn X í dag hefur varkið sérstaka athygli.

Það ræðir Blatter afsökunarbeiðni Infantino í gær en sá síðarnefndi birti einnig opinbera sjónvarpsyfirlýsingu þar sem hann baðst velvirðingar á framferði sínu. Það gerði hann í stað þess að hitta fjölmiðla sem hann hefur alfarið neitað um viðtöl.

Í ljósi þess að Infantino ákvað í vikunni að afhenda knattspyrnusamböndum FIFA gríðarlega aukin fjárútlát úr veigamiklum varasjóðum FIFA líkir Blatter framkomu forsetans við syndaaflausn.

Í færslu Blatters segir:

„Gianni Infantino, sá allra besti! Ótrúleg frammistaða í Zürich: Infantino, að því er virðist góður kaþólikki, játar syndir sínar og lofar síðan 25 milljónum. Skriftir, aflát og syndaaflausn – allt í einni framkomu! Páfinn yrði himinlifandi. En í fótbolta, rétt eins og í kirkjunni, verður trúverðugleiki ekki keyptur. #Fifa #GianniInfantino #aflát #syndaaflausn #Páfinn“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×