Enski boltinn

Sjáðu tvennuna hjá sjóð­heitum Andra Lucasi

Sindri Sverrisson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen skorar hér gegn WBA í dag.
Andri Lucas Guðjohnsen skorar hér gegn WBA í dag. Getty/Joe Giddens

Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið sjóðheitur og skoraði tvö frábær mörk fyrir Blackburn í fyrri hálfleik gegn WBA í ensku B-deildinni í fótbolta í dag.

Mörkin má sjá hér að neðan og það var Andra Lucasi að þakka að Blackburn var 2-1 yfir í hálfleik en leiknum var ekki lokið þegar þetta var skrifað.

Klippa: Tvenna Andra í fyrri hálfleik

Eftir að hafa verið með íslenska landsliðinu og skorað þá bæði gegn Eistlandi og Lúxemborg hefur Andri nú skorað þrjú mörk í þremur leikjum fyrir Blackburn.

Alls hefur Andri þar með skorað sex mörk á tímabilinu í ensku B-deildinni, er markahæstur hjá Blackburn og á meðal markahæstu leikmanna deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×