Erlent

Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna

Bjarki Sigurðsson skrifar
Starfsmönnunum þótti börnin ekki borða nóg af matnum sem eldaður var fyrir þau.
Starfsmönnunum þótti börnin ekki borða nóg af matnum sem eldaður var fyrir þau. Getty

Eigandi barnaheimilis í Kína og fimm starfsmenn hafa verið dæmdir í fangelsi eftir að hafa eitrað fyrir yfir tvö hundruð börnum. Eigandinn setti málningu í matinn til að hann myndi líta betur út og börnin vildu frekar borða hann. 

Atvikið átti sér stað í Heshi Peixin-leikskólanum í Tianshui í Gansu-héraði í júlí á síðasta ári. Allt í einu fór fjöldi barna að veikjast og mældist magn blýs í blóði þeirra furðulega hátt. 

Í ljós kom að matráðar leikskólans höfðu sett málningu sem ekki er ætlað að borða í mat barnanna. Það gerðu þeir til að bæta útlit matarins svo börnin væru líklegri til að borða matinn, þó svo að á umbúðum málningarinnar hafi staðið skilmerkilega að það mætti ekki leggja hana til munns.

Li Huifang, eigandi leikskólans, var dæmd í lífstíðarfangelsi og leikskólastjórinn Zhi Junglin í fimmtán ára fangelsi. Matráðarnir fengu sex til átta ára dóm. Við rannsókn málsins kom í ljós að Huifang og Junglin höfðu skipað starfsmönnunum að setja málningu í matinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×