Íbúarnir höfðu betur Bjarki Sigurðsson skrifar 19. október 2026 10:08 Tölvumynd af því hvernig svæðið átti að líta út eftir uppbyggingu. Hafnarfjörður Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að falla frá áformum um uppbyggingu íbúða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Uppbyggingin þótti afar umdeild og var henni mótmælt á íbúafundi fyrr í mánuðinum.
Í tilkynningu frá bænum segir að ákvörðunin hafi verið tekin að undangenginni yfirferð á forsendum verkefnisins, meðal annars með hliðsjón af sjónarmiðum sem fram hafa komið í samtali við íbúa. Meirihlutinn sé samstíga í þessari ákvörðun. „Við töldum þetta metnaðarfulla og áhugaverða hugmynd til að mæta raunverulegri þörf á húsnæðismarkaði. Við höfum hins vegar farið yfir forsendur verkefnisins í ljósi þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið, meðal annars á íbúafundi sem við héldum um málið. Niðurstaða okkar er sú að rétt sé að falla frá áformunum. Það er eðlilegur hluti af ábyrgri ákvarðanatöku að endurmeta verkefni þegar aðstæður kalla á það,“ er haft eftir Orra Björnssyni, formanni bæjarráðs Hafnarfjarðar, í tilkynningu. Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.Vísir/Lýður Meirihlutinn leggur þó áherslu á að sú þörf sem verkefninu var ætlað að mæta sé enn til staðar og óleyst. Það sé vel þekkt að of margir búi við þröngan kost í óleyfilegu húsnæði sem uppfylli ekki kröfur um öryggi og aðbúnað. Slíkar aðstæður séu óásættanlegar og mikilvægt að leita áfram leiða til úrbóta. Mikilvægt sé að sveitarfélög hefji samtal um það hvernig hægt sé að leysa þennan vanda. Íbúafundur eftir undirskriftarlista Uppbyggingin var á vegum Hafnarfjarðar og Styrkáss Fasteigna. Reisa átti 130 húseiningar með 260 íbúðum á um tíu hektara svæði rétt við Vellina. Íbúðirnar átti að nýta í að hýsa starfsfólk í verkefnatengdri vinnu. Yfir þrjú þúsund manns skrifuðu undir undirskriftarlista á Ísland.is þar sem uppbyggingunni var mótmælt, meðal annars þar sem þarna væri verið að skerða aðkomuna að Hvaleyrarvatni. Samkomulag bæjarins og Styrkáss hafi verið gert án nokkurs samráðs og boðaði bærinn ekki til íbúafundar fyrr en eftir kynningu verkefnisins.
Hafnarfjörður Húsnæðismál Sveitarstjórnarmál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira