Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. október 2026 11:40 Tónlistarstjörnurnar og veiðimennirnir Pálmi Gunnarsson og Bubbi Morthens áttu í orðaskaki yfir jarðakaupum auðkýfingsins Jims Ratcliffe. Vísir/Lilja/Vilhelm Mikil umræða kviknaði á Facebook um helgina um ítök og áhrif breska auðjöfursins Jims Ratcliffe sem hefur keypt tugi jarða á Norðausturlandi á síðustu áratugum. Sló í brýnu milli veiði- og tónlistarmannanna Bubba Morthens og Pálma Gunnarssonar sem voru ósammála um Ratcliffe og áætlanir hans.
Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, skrifaði á laugardaginn ítarlega Facebook-færslu um ítök Ratcliffe sem vakti viðbrögð og hrinti af stað mikilli umræðu. „Einn auðugasti maður heims er Bretinn Jim Ratcliffe. Spurningin um það hvort skilgreina eigi hann sem olígarka veltur á ítökum hans í pólitík. Hann studdi Brexit og var aðlaður 2018 fyrir framlag sitt til viðskipta og fjárfestinga í Bretlandi, enda einn stærsti skattgreiðandi landsins. Tveimur árum síðar flutti hann skattalegt heimilisfesti sitt til Mónakó og sparaði sér þar með 4 milljarða punda. Var hann gagnrýndur heima fyrir að hafa talað fyrir breskri velferð, en hundsa hana í verki,“ skrifaði Herdís. Ratcliffe stofnaði Six Rivers-verkefnið árið 2019 en markmið þess er að vernda villta Atlantshafslaxinn og sporna við fækkun hans. Verkefnið heldur utan um gögn um laxinn, stendur fyrir uppbyggingu í tengslum við laxveiði og skipuleggur fluguveiðiferðir. Samhliða því hefur hann keypt 39 jarðir á Norðausturlandi. Herdís er uggandi yfir landareign Ratcliffe. „Jim Ratcliffe er einn af stærstu landeigendum á Íslandi. Fyrirtæki hans Six Rivers á og stýrir víðtækum réttindum, fasteignum og mannvirkjum sem tengjast laxveiði og náttúruvernd á Norðausturlandi. Hann á um 1.500 ferkílómetra af íslensku landi, þ.á m. jarðir eins og Grímsstaði á Fjöllum; og hefur umráð yfir fimm af þekktustu og gjöfulustu laxveiðiám á norðausturhorninu (Selá, Hofsá, Hafralónsá, Miðfjarðará og Vesturdalsá),“ skrifaði Herdís. Velti hún því fyrir sér hvort það hrikti ekki í fullveldi landsins þegar lunginn af heilu kjördæmi væri kominn í eigu erlends auðkýfings. Hann ætti hátt í helming af byggilegu landi í Norðausturkjördæmi og væri fjórði stærsti landeigandinn á Íslandi, á eftir ríkissjóði, sveitarfélögum og þjóðkirkjunni. Sjálfur lýsti Ratcliffe því yfir fyrir fimm árum að hann ætlaði sér ekki að kaupa meira land. „Ratcliffe er í svipaðri stöðu og goði á Sturlungaöld þegar fáar valdaættir sölsuðu undir sig mörg goðorð og réðu heilum landsfjórðungum. Ábúendur jarða áttu engra annarra kosta völ en að lúta þeim stórhöfðingja sem réði yfir öllu landssvæðinu,“ skrifaði Herdís. „Hvað hugsuðu nú þingmennirnir, sem hafa sumir gert fullveldi að baráttumáli, þegar þeir heimsóttu Six Rivers áður en þeir fóru í nætursund um daginn. Goðinn Ratcliffe sat að vísu heima á höfuðbóli sínu í Vopnafirði en íslenskur erindreki hans tók á móti þingmönnum ,,kjördæmis hans“. Hugsuðu þeir um landið sem yfirráðasvæði íslensks ríkisvalds? Hugsuðu þeir um stjórnskipun Íslands og fólkið sem tilheyrir ríkinu? Eða fór um þá kuldahrollur að hér væri kannski hætta á ferðum: „Goðinn“ Ratcliffe væri kominn með slík ítök í kjördæminu að hann gæti fært út kvíarnar óháð hagsmunum þjóðarinnar; hann gæti farið að velja og ráða þingmönnum kjördæmisins í krafti auðlegðar sinnar?“ spurði hún. „Þeir fóru síðan í nætursund og kannski sjálfum sér að voða – en áhyggjuefnið um hvort alþjóðlegur olígarki sé að ná yfirráðum í landsfjórðungi þeirra virðist ekki hafa valdið þeim eða fjölmiðlum landsins hugarangri.“ „Þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig“ Færsla Herdísar vakti mikla athygli, rúmlega sjö hundruð manns brugðust við henni og var henni deilt hátt í þrjú hundruð sinnum. Meðal þeirra sem deildu færslunni og tóku undir orð Herdísar var Bubbi Morthens, tónlistarmaður og stangveiðimaður. „Ratcliffe hefur verið að reyna ná í og menn á hans vegum sagt upphátt vilja Laxá í Aðaldal, allt við þetta lið er ógeðfellt, þeir loka líka ánum fyrir Íslendingum, þetta er orðið leikfang fyrir hann og hirðina í kringum hann,“ skrifaði Bubbi. Bubbi Morthens vill að ríkið endurheimti land af Ratcliffe.Vísir/Vilhelm Hann sagði það fyrirslátt að jarðasöfnunin væri gerð fyrir verndun náttúrunnar. „Það á að taka þetta af þeim og borga til baka. Ríkið á ekki að láta þetta viðgangast, hann er þriðji stærsti landeigandi Íslands og þetta er farið að ógna byggðarlögum og gleymum því ekki hann er með vatnsréttindi sem eru tugir hundraða milljarða virði,“ skrifaði hann. Félagið Aðaldalur ehf., sem er í eigu félagsins Dylan Holdings SA í Lúxemborg, keypti á árunum 2009 til 2019 hluti í jörðum í Aðaldælahreppi og jók þannig veiðirétt sinn í Laxá í Aðaldal. Fjárfestirinn Jóhannes Kristjánsson var í forsvari fyrir félagið en hann og Ratcliffe hafa átt í miklum viðskiptum gegnum árin og töldu margir að Ratcliffe væri viðriðinn kaupin. Gísli Ásgeirsson, talsmaður Ratcliffe á Íslandi, neitaði hins vegar fyrir að Ratcliffe seildist til áhrifa í ánni. Pálmi Gunnarsson, bassaleikari Mannakorna og fluguveiðimaður, virtist ekki sáttur við færslu Bubba en Pálmi hefur ásamt fleirum leigt silungasvæði Hofsár í Vopnafirði af Six Rivers síðustu ár. „Vá, reyndi hann að kaupa ána með jörðum og öllu sem við á að éta?“ skrifaði Pálmi við færslu Bubba og vísar þar til Laxár í Aðaldal. Pálmi Gunnarsson á sviði.Lilja Guðmundsdóttir „Þú ert of tengdur honum,“ svaraði Bubbi. „Hvað áttu við? Og geturðu ekki svarað spurningunni með öðrum hætti en aðdróttunum,“ sagði Pálmi þá. „Ertu ekki að vinna fyrir hann og Gísla, sérðu ekki um neðra svæðið fyrir lordinn í Hofsá[?] Ef ekki þá tek ég til baka það sem ég sagði,“ sagði Bubbi. „Ég er ekki að vinna fyrir einn eða neinn nema sjálfan mig. Er með silungasvæði Hofsár á leigu ásamt vinum mínum. Ekki að þér komi það neitt við. En þú átt eftir að svara mér varðandi Laxá,“ sagði Pálmi. Bubbi dró þá í land og sagði upphaflegu færsluna kauðslega orðaða, Ratcliffe og félagar hefðu falast eftir að taka ánna á leigu eins og aðrar ár. Hann ítrekaði samt fyrri orð í öðrum ummælum: „Ef þú leigir af honum neðra svæði þá ertu tengdur honum puntur.“ Bubbi lenti í orðaskaki við Pálma.Vísir/Vilhelm „Ekki vera fáviti,“ svaraði Pálmi þá. „Þannig er það, þannig er það skrifað,“ sagði Bubbi. „Ef þér líður betur með það,“ svaraði Pálmi. „Það hefur ekkert með mig að gera, ekki er ég að hossa þessum manni,“ sagði Bubbi. „Nei þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig. Annars nenni ég þér ekki, punktur,“ sagði Pálmi að lokum og lauk þá orðaskiptunum.
Facebook Norðausturkjördæmi Jarðakaup útlendinga Samfélagsmiðlar Lax Bleikja Tengdar fréttir Var lengi hikandi að selja Ratcliffe laxveiðijarðirnar Cargolux-flugstjórinn fyrrverandi, sem safnaði laxveiðijörðum í Vopnafirði, segist hafa selt þær breska auðkýfingnum Jim Ratcliffe eftir að hafa sannfærst um að þar færi einlægur náttúruverndarsinni sem vildi vernda laxastofninn. 12. júní 2025 10:20 Þyrla ferjaði vistir fyrir fjallgönguhóp Ratcliffe Daglegar ferðir svartrar þyrlu, sem breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe á, til og frá Egilsstöðum vöktu athygli Héraðsbúa í síðust viku. Á daginn kom að þyrlan hafði verið að ferja vistir fyrir Ratcliffe og félaga í fjallaferð á Austurlandi. 5. apríl 2025 10:04 „Það væri mjög sorglegt ef villti laxinn hyrfi“ segir Ratcliffe Jim Ratcliffe, einn auðugasti maður Bretlands og áhugamaður um villta laxastofna, segir nauðsynlegt að finna leiðir til að vernda stofnana og að bregðast þurfi skjótt við. 19. apríl 2023 06:38 Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Fleiri fréttir Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Sjá meira
Var lengi hikandi að selja Ratcliffe laxveiðijarðirnar Cargolux-flugstjórinn fyrrverandi, sem safnaði laxveiðijörðum í Vopnafirði, segist hafa selt þær breska auðkýfingnum Jim Ratcliffe eftir að hafa sannfærst um að þar færi einlægur náttúruverndarsinni sem vildi vernda laxastofninn. 12. júní 2025 10:20
Þyrla ferjaði vistir fyrir fjallgönguhóp Ratcliffe Daglegar ferðir svartrar þyrlu, sem breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe á, til og frá Egilsstöðum vöktu athygli Héraðsbúa í síðust viku. Á daginn kom að þyrlan hafði verið að ferja vistir fyrir Ratcliffe og félaga í fjallaferð á Austurlandi. 5. apríl 2025 10:04
„Það væri mjög sorglegt ef villti laxinn hyrfi“ segir Ratcliffe Jim Ratcliffe, einn auðugasti maður Bretlands og áhugamaður um villta laxastofna, segir nauðsynlegt að finna leiðir til að vernda stofnana og að bregðast þurfi skjótt við. 19. apríl 2023 06:38